Verkefni

Egilsstaðaflugvöllur

Egilsstaðaflugvöllur er einn af fjórum alþjóðlegum flugvöllum á Íslandi.

Mikilvægi hans liggur í flugi á milli Evrópu og Íslands, Bandaríkjanna og Íslands og flug yfir Ísland.

Egilsstaðaflugvöllur er einn af fjórum alþjóðlegum flugvöllum á Íslandi. Mikilvægi hans liggur í flugi á milli Evrópu og Íslands, Bandaríkjanna og Íslands og flug yfir Ísland. Flugstöðin var upphaflega byggð 1963 – 1968 en endurbyggð og stækkuð á árunum 1987 – 1999. Völlurinn þjónar nánast öllu svæði frá Vopnafirði í norðri til Breiðdalsvíkur/Djúpavogs í suðri.
 
Verkefnið snýr að byggingu nýs flugvallar á Egilsstöðum. Nýr flugvöllur með einni flugbraut, sem er 2.000x60m, ný flugstöð og þjónustuhús. 160.000 m².
 
Verkís annaðist forathuganir, hönnun, útboðsgagnagerð, kostnaðaráætlun og framkvæmdaeftirlit.

Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:

Egilsstaðir

Stærð:

160.000 m²

Verktími:

1987-1999

 

Heimsmarkmið