Verkefni
Um mitt ár 2015 hafði GEG með góðum árangri gangsett alls 8 virkjanir í Olkaria í Kenía með samtals 45,6 MW framleiðslugetu.
Virkjað rennsli er 15 rúmmetrar á sekúndu og fallhæð 186 m.
Verkefni
Um mitt ár 2015 hafði GEG með góðum árangri gangsett alls 8 virkjanir í Olkaria í Kenía með samtals 45,6 MW framleiðslugetu.
Virkjað rennsli er 15 rúmmetrar á sekúndu og fallhæð 186 m.
Green Energy Geothermal (GEG) er fyrirtæki, sem einbeitir sér að því, sem „turn-key“ aðili, að afhenda staðlaðar og hreyfanlegar holutoppsvirkjanir. Hugmyndin byggir á tæknilausn forframleiddri í stöðluðum einingum/gámum, sem hægt er að setja upp og gangsetja á staðnum á nokkrum vikum. Verkís hefur veitt GEG ráðgjafarþjónustu við þróun hagkvæmra holutoppsvirkjana á stærðarbilinu 2,5 MW til 6,4 MW.
Hugmyndin að holutoppsvirkjun var upphaflega útfærð til að setja upp við fyrstu borholurnar á jarðhitasvæði, sem virkja átti, til að framleiða rafmagn á meðan verið var að byggja stærri jarðvarmavirkjun. Þessi valkostur gerir framkvæmdaraðilum kleift að fá arð af fjárfestingu sinni fyrr en í hefðbundnum þróunarkerfum, þar sem hægt er að setja upp holutoppsvirkjun á nokkrum mánuðum í stað þess en að bíða í mörg ár áður en hægt er að tengja borholu við stærri virkjun.
Holutoppseiningarnar eru hannaðar þannig að hægt er að flytja þær á milli staða, svo sem yfir á aðra holutoppa eftir því sem framkvæmdum miðar áfram og holur tengjast stærra orkuveri, en einnig er hægt að setja þær upp sem varanlegar einingar. Holutoppsvirkjanirnar/-einingarnar er hannaðar til að passa inn í staðlaða 40ft ISO gáma.
Sérfræðingar Verkís hafa veitt Green Energy Geothermal ráðgjöf við þróun og hönnun tæknilausnarinnar, og stutt rannsóknar- og þróunarteymi GEG á ýmsum sviðum.
Heildarframleiðslugeta
Virkjað rennsli
Fallhæð
Að þróa hagkvæmar og sveigjanlegar holutoppsvirkjanir sem hægt er að setja upp hratt við nýjar jarðhitaholur og hefja raforkuframleiðslu áður en stærri jarðvarmavirkjun er tilbúin. Jafnframt þurfti lausnin að vera færanleg og aðlöguð að mismunandi staðsetningum og borholum.
Verkís veitti Green Energy Geothermal ráðgjöf við þróun og hönnun staðlaðrar tæknilausnar fyrir holutoppsvirkjanir. Einingarnar voru hannaðar í stöðluðum 40 feta ISO-gámum þannig að hægt sé að flytja þær á milli staða og setja upp á nýjum holutoppum eftir því sem uppbyggingu jarðhitasvæðisins vindur fram. Verkís studdi einnig rannsóknar- og þróunarteymi GEG á ýmsum sviðum tæknilausnarinnar.
Lausnin gerir kleift að hefja raforkuframleiðslu á jarðhitasvæði mun fyrr en með hefðbundinni uppbyggingu stærri virkjunar og flýtir þannig fyrir nýtingu fjárfestingar í borholum. Verkís hefur stutt þróun holutoppsvirkjana á stærðarbilinu 2,5–6,4 MW, og um mitt ár 2015 hafði GEG gangsett átta virkjanir í Olkaria í Kenía með samtals 45,6 MW framleiðslugetu.
Verkefnið í hnotskurn
Staðsetning:
Kenía
Stærð:
2,5 – 6,4 MW
Verktími:
2009 –
Kynntu þér hvernig við höfum aðstoðað viðskiptavini við að leysa flóknar tæknilegar, umhverfislegar og rekstrartengdar áskoranir með nýstárlegum verkfræðilausnum og stefnumótandi ráðgjöf á fjölbreyttum mörkuðum.