Skip to content

Verkefni

Tengivirki Sauðárkrókur

Vegna áforma um aukna orkunotkun á Sauðárkróki er fyrirhugað að styrkja tengingu svæðisins við flutningskerfið.

Auka þannig orkuafhendingu og afhendingaröryggi með því að leggja 66 kílóvolta jarðstreng, Sauðárkrókslínu 2, frá Varmahlíð á Sauðárkrók.



Yfirlit verkefnis

Byggð verða tvö ný tengivirki, annars vegar yfirbyggt 66 kílóvött, fjögurra rofareita tengivirki á Sauðárkróki og hins vegar yfirbyggt 66 kílóvött, fimm rofareita tengivirki í Varmahlíð.

Eina tenging Sauðárkróks við flutningskerfið er 66 kílóvött loftlína frá Varmahlíð sem er orðin rúmlega fjörutíu ára gömul og mun tilkoma jarðstrengsins auka orkuöryggi og meira en tvöfalda flutningsgetu að svæðinu. Áformað er að jarðstrengurinn, sem verður um 24 kílómetra langur, liggi samsíða núverandi loftlínu hálfa leiðina að Sauðárkóki en við Sauðárkróksbraut nyrðri helming leiðarinnar. Þá verður núverandi loftlína, Sauðárkrókslína, tengd með jarðstreng við tengivirkið á Sauðárkróki.

Verkís sér um hönnun og gerð verklýsingar, magnskrár og útboðsgagna fyrir tengivirkið, það er fyrir 66 kílóvött GIS rofabúnað, ásamt hjálparbúnaði, gerð verkteikninga, aðstoð á útboðstíma og verktíma. Á Sauðárkróki á einnig að byggja yfir tveggja MVA jöfnunarspólu. Verkís sér um aðstoð á útboðstíma, hönnunareftirlit og aðstoð á verktíma.

66kv

Spenna tengivirkjanna



4

Tengivirksreitir í Varmahlíð



24km

Lengd jarðstrengs

Áskorunin

Að bregðast við aukinni orkunotkun á Sauðárkróki og styrkja tengingu svæðisins við flutningskerfið. Núverandi tenging var rúmlega 40 ára gömul 66 kV loftlína og því var þörf á auknu afhendingaröryggi og meiri flutningsgetu.

Lausnin okkar

Verkís kom að hönnun nýs yfirbyggðs 66 kV tengivirkis með fjórum rofareitum á Sauðárkróki og fimm rofareita tengivirkis í Varmahlíð. Verkefnið felur jafnframt í sér 24 km jarðstreng, Sauðárkrókslínu 2, sem styrkir tengingu svæðisins við flutningskerfið. Á Sauðárkróki er einnig gert ráð fyrir yfirbyggingu yfir 2 MVA jöfnunarspólu.

Niðurstaðan

Ný tenging og tengivirki munu meira en tvöfalda flutningsgetu að Sauðárkróki og auka um leið afhendingaröryggi raforku. Verkefnið styrkir flutningskerfið og skapar traustari innviði til að mæta aukinni orkunotkun og framtíðarþróun á svæðinu.


Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:


Skagafjörður


Stærð:


66 kílóvött


Verktími:


2018 – 2021


Þjónusta Verkís





Heimsmarkmið