Verkefni
Nesjavallaæð er aðveituæð fyrir heitt vatn frá Nesjavöllum til Reykjavíkur, alls 27 km löng.
Nesjavallaæð formlega tekin í notkun árið 1990.
Verkefni
Nesjavallaæð er aðveituæð fyrir heitt vatn frá Nesjavöllum til Reykjavíkur, alls 27 km löng.
Nesjavallaæð formlega tekin í notkun árið 1990.
Lengd Nesjavallaæðar
Hámarksflutningsgeta
Hitastig heita vatnsins
Að hanna 27 km langa aðveituæð sem gæti flutt mikið magn af 100°C heitu vatni frá Nesjavöllum til Reykjavíkur með lágmarks varmatapi og miklu rekstraröryggi. Hönnunin þurfti jafnframt að taka mið af miklum hæðarmun, háum þrýstingi, hitaþenslu pípunnar og jarðskjálftaálagi.
Verkís sá um heildstæða verkfræðiþjónustu við verkefnið, allt frá verkefnastjórnun og fullnaðarhönnun til jarðtæknilegrar hönnunar, vélbúnaðar, burðarvirkja og framkvæmdaeftirlits.
Nesjavallaæð var hönnuð með sérhæfðum undirstöðum, þenslustykkjum og þenslulykkjum til að mæta allt að 25 metra hitaþenslu pípunnar. Vönduð einangrun og útfærsla æðarinnar tryggja jafnframt mjög lítið varmatap á leiðinni.
Nesjavallaæð var tekin í notkun árið 1990 og hefur síðan gegnt mikilvægu hlutverki við flutning jarðhitavatns frá Nesjavöllum til Reykjavíkur.
Við hámarksrennsli tekur ferð vatnsins um 2 klukkustundir og hitafallið er aðeins um 0,4°C. Þrátt fyrir að varmatap í fullhlaðinni æð nemi um 3,4 MW samsvarar það aðeins um 0,8% af heildarvarmanum sem æðin flytur.
Verkefnið er gott dæmi um hvernig vönduð verkfræðihönnun getur tryggt áreiðanlegan flutning jarðvarma yfir langar vegalengdir með lágmarks orkutapi.
Verkefnið í hnotskurn
Staðsetning:
Nesjavallavirkjun til Reykjavíkur
Stærð:
27 km
Verktími:
1987 – 1990
Kynntu þér hvernig við höfum aðstoðað viðskiptavini við að leysa flóknar tæknilegar, umhverfislegar og rekstrartengdar áskoranir með nýstárlegum verkfræðilausnum og stefnumótandi ráðgjöf á fjölbreyttum mörkuðum.