Yfirlit verkefnis
Menengai er eitt af mikilvægustu jarðhitasvæðum Kenýa og hefur um árabil verið í uppbyggingu sem mikilvæg uppspretta endurnýjanlegrar raforku. Á svæðinu hafa verið byggð þrjú sjálfstæð orkuver sem nýta gufu frá jarðhitasvæðinu til raforkuframleiðslu. Verkís kom að uppbyggingu einnar þessara virkjana, 35 MW jarðvarmavirkjunar sem er í eigu Globeleq og Fuji Electric.
Verkís gegndi hlutverki Owner’s Engineer, eða eigendaráðgjafa, fyrir verkefnið og veitti eiganda tæknilega ráðgjöf á mismunandi stigum framkvæmdarinnar. Hlutverk Verkís fól meðal annars í sér tæknilega yfirferð og eftirfylgni með hönnun, búnaði og framkvæmd verkefnisins, með áherslu á gæði, afköst og samræmi við settar kröfur.
Verkefnið var umfangsmikið og krafðist náins samstarfs eigenda, ráðgjafa, verktaka og búnaðarframleiðenda. Toyota Tsusho Corporation og dótturfélag þess, CFAO Kenya, sáu um hönnun, innkaup og byggingu virkjunarinnar. Heildarfjárfesting verkefnisins nemur um 117 milljónum Bandaríkjadala.
Jarðhitagufan fyrir virkjunina kemur frá borholum á Menengai-svæðinu. Ríkisfyrirtækið Geothermal Development Company (GDC) sér um uppbyggingu gufuöflunar og afhendingu gufu til sjálfstæðra orkuframleiðenda (IPP), sem framleiða rafmagn fyrir landskerfið í samstarfi við Kenya Power.
Verkís kom einnig að prófunum og gangsetningu virkjunarinnar. Í upphafi maí 2026 voru fulltrúar Verkís á staðnum þegar gangsetning hófst og tóku þátt í prófunum og yfirferð á vélasamstæðu orkuversins. Þorleikur Jóhannesson hjá Verkís tók meðal annars þátt í svokölluðu Performance Test ferli þar sem staðfest er að búnaðurinn standist þær afkastakröfur sem hann var hannaður fyrir áður en endanleg afhending fer fram.
Verkefnið er hluti af áframhaldandi uppbyggingu endurnýjanlegrar orkuframleiðslu í Kenýa, þar sem jarðvarmi gegnir mikilvægu hlutverki í orkukerfinu. Með verkefninu nýtist íslensk jarðvarmaþekking í uppbyggingu orkukerfis á alþjóðavettvangi og Verkís styrkir jafnframt reynslu sína af ráðgjöf við jarðvarmaverkefni utan Íslands.
Áskorunin
Uppbygging jarðvarmavirkjunar krefst samræmingar margra ólíkra tæknisviða og þess að tryggt sé að hönnun, búnaður og framkvæmd uppfylli kröfur um afköst, áreiðanleika og gæði. Sem Owner’s Engineer þurfti Verkís að hafa yfirsýn yfir tæknilega þætti verkefnisins og veita eiganda óháða sérfræðiráðgjöf í gegnum uppbygginguna.
Lausnin okkar
Verkís veitti tæknilega ráðgjöf sem Owner’s Engineer og kom að yfirferð og eftirfylgni með verkefninu frá uppbyggingu til prófana og gangsetningar. Sérfræðingar Verkís fylgdust með tæknilegum þáttum verkefnisins og tóku þátt í prófunum á vélasamstæðunni áður en virkjunin var afhent. Sérstök áhersla var lögð á Performance Test, þar sem afköst vélasamstæðunnar voru sannreynd og borin saman við þær kröfur sem gerðar voru til búnaðarins.
Niðurstaðan
35 MW jarðvarmavirkjunin á Menengai er komin í gangsetningu og bætir við endurnýjanlegri raforkuframleiðslu á svæðinu. Verkefnið er mikilvægt dæmi um alþjóðlega jarðvarmastarfsemi Verkís og hvernig sérþekking fyrirtækisins á jarðvarma, virkjunum og tæknilegri eigendaráðgjöf nýtist við uppbyggingu orkukerfa víða um heim.