Yfirlit verkefnis
Íslenska kalkþörungafélagið vinnur kalkþörungaset úr Breiðafirði til framleiðslu á kalkþörungamjöli. Verkís hefur komið að þróun verksmiðjunnar og tæknilegum úrbótum á framleiðsluferlinu, auk ráðgjafar og undirbúnings vegna stækkunar hennar.
Verksmiðjan var stækkuð úr um 85.000 tonn í 120.000 tonn á ári. Verkís sinnti undirbúningi og ráðgjöf vegna starfsleyfismála í tengslum við stækkunina og aukna framleiðslugetu.
Aðkoma Verkís hefur jafnframt náð til hönnunar og endurbóta á vinnslubúnaði, þurrkunar- og hreinsikerfum, efnisflutningskerfum og hafnarmannvirkjum. Ásamt ráðgjöf vegna umhverfis- og öryggismála.
Áskorunin
Stækkun kalkþörungaverksmiðjunnar og þróun framleiðslunnar kalla á tæknilegar lausnir sem mæta þörfum vinnsluferlisins og styðja við starfsemi verksmiðjunnar. Jafnframt þarf að huga að umhverfismálum, öryggi og þeim innviðum sem nauðsynlegir eru fyrir framleiðslu og flutning afurða.
Lausnin okkar
Verkís hefur veitt fjölbreytta verkfræðiráðgjöf og hönnunarþjónustu vegna þróunar og stækkunar verksmiðjunnar.
Þurrkun og mengunarvarnir
- Ráðgjöf, hönnun og útreikningar vegna þurrkunar kalkþörungs.
- Lausnir á vandamálum tengdum útblæstri og rykmengun.
- Úttekt á rykafsogunarkerfi og tillögur að endurbótum.
Framleiðslubúnaður og tæknilegir innviðir
- Frumhönnun og gerð þrívíddarlíkans af nýrri vinnslurás og vélbúnaði.
- Hönnun þurrkunar-, hreinsunar- og efnisflutningskerfa.
Starfsleyfi og öryggismál
- Ráðgjöf vegna starfsleyfismála í tengslum við stækkun verksmiðjunnar og aukna framleiðslugetu.
- Úttekt á öryggismálum.
Hafnarmannvirki
- Hönnun og gerð útboðsgagna vegna stálþils við kalkþörungahöfnina á Bíldudal.
- Ráðgjöf vegna stálþilsefnis.
- Umsjón með framkvæmdum, meðal annars samningsgerð við verktaka og kostnaðareftirlit.
- Eftirlit með framkvæmdum við landfyllingu vegna hafnarbyggingarinnar.
Niðurstaðan
Verkís hefur stutt við þróun og stækkun kalkþörungaverksmiðjunnar á Bíldudal með fjölbreyttri verkfræðiráðgjöf. Aðkoman hefur meðal annars náð til framleiðslubúnaðar, tæknilegra lausna, umhverfis- og öryggismála og hafnarmannvirkja.
Verkefnið endurspeglar breidd verkfræðiþjónustu Verkís við iðnaðarfyrirtæki, þar sem saman fara ráðgjöf, hönnun og eftirlit með tæknilegum innviðum.