Veröld – Hús Vigdísar er á horni Suðurgötu og Brynjólfsgötu. Byggingin er um 4.000 m² og hýsir Vigdísarstofnun. Markmið byggingarinnar er tvíþætt, annars vegar að skapa aðstöðu fyrir starfsemi alþjóðlegrar tungumálamiðstöðvar, sem mun starfa undir formerkjum UNESCO og hins vegar að skapa fullkomna aðstöðu til kennslu, rannsókna og miðlunar þekkingar um tungumál til almennings og þekkingarsamfélagsins.
Í húsinu verður starfrækt fræðslu- og upplifunarsetur. Það er einnig aðstaða fyrir fyrirlestra-, ráðstefnu- og sýningarhald, vinnuaðstaða fyrir erlenda gestafræðimenn og fyrir kennslu og rannsóknir í erlendum tungumálum. Þar verður einnig Vigdísarstofa, tileinkuð Vigdísi Finnbogadóttur, þar sem hægt verður að fræðast um líf hennar og störf.
Hönnunin er unnin á grundvelli vinningstillögu í hönnunarsamkeppni. Verkefnið er unnið samkvæmt BIM aðferðarfræðinni og ferli samkvæmt BREEAM, vottunarkerfi um vistvænar byggingar.
Verkís sá um alla verkfræðihönnun, þ.e. burðarþolshönnun, lagna- og loftræsihönnun, bruna- og öryggishönnun, raflagnahönnun og lýsingarhönnun. Verkefnið er unnið samkvæmt BIM aðferðafræðinni.