Verkefni

Útvarpsreitur við Efstaleiti

Framkvæmdir vegna þéttingar byggðar á svokölluðum Útvarpsreit fólu meðal annars í sér gerð gatna, bílastæða, færslu á stofnæð hitaveitu og lagningu og endurnýjun lagna.

Gerð voru ný bílastæði austan og norðan við Útvarpshúsið og vestursvæði endurnýjað. Á vestursvæði voru byggðir stoðveggir með lýsingu sem hönnuð var af lýsingarhönnuðum Verkís.

Stofnæð hitaveitu, Reykjaæð, þurfti að færa ásamt því að tengibrunnar á svæðinu voru fjarlægðir. Lagnir vatnsveitu voru endurnýjaðar og nýjar stofnlagnir vegna byggðar lagðar. Fráveita á svæðinu var endurnýjuð og nýtt fráveitukerfi byggt. Lagnir fjarskiptafyrirtækja voru færðar og lagðar nýjar.

Framkvæmdir hófust í október árið 2016 og var stórum hluta þeirra lokið sumarið 2018, þó svo vinnu við lagnir og gerð gangstétta í síðasta áfanga verksins hafi ekki verið lokið fyrr en árið 2019. Gerðar hafa verið tvær götur, annars vegar Jarðarleiti sunnan við RÚV og hins vegar Lágaleiti sem tengir hverfið við Háaleitisbraut og Efstaleiti.

Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:

Efstaleiti, Reykjavík

Verktími:

2016-2019

 

Heimsmarkmið