Verkefni
Þjónustumiðstöð – Borgarnes
Þjónustumiðstöðin í Borgarnesi hýsir bæði verslanir og veitingahús en húsið er á einni hæð og aðgengi eins og best verður á kosið.
Verkefni
Þjónustumiðstöðin í Borgarnesi hýsir bæði verslanir og veitingahús en húsið er á einni hæð og aðgengi eins og best verður á kosið.
Verkís sá um alla verkfræðihönnun: jarðtækni og grundun, burðarþolshönnun, brunahönnun, lagnir og loftræsingu, rafmagn, lýsingu, mælingar, lóð og plön við hús og ráðgjöf við hljóðvist.
Verkís studdist við BIM aðferðafræðina við vinnu verksins. Öll hönnunarlíkön voru sett í skýþjónustuna BIM 360 Glue frá Autodesk þar sem líkönin voru samræmd og árekstrargreind. Slík samræming og árekstragreining milli byggingahluta getur fækkað vandamálum og skapað hagræðingu á framkvæmdatíma. Einnig var settur upp sýndarveruleiki sem gerði verkkaupa og arkitektum hússins kleift að ganga í gegnum það og virða það fyrir sér.
Staðsetning:
Digranesgata 4, Borgarnes
Stærð:
1.000 fermetrar
Verktími:
2018-2020