Skip to content

Verkefni

Þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi

Verkís sá um hönnun rafkerfa fyrir nýja þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi, sem hýsir þjónustu-, sýningar- og kennsluaðstöðu fyrir Þjóðgarðinn Snæfellsjökul.

Byggingin er um 710 m² að stærð og er hönnuð með áherslu á góða aðstöðu fyrir gesti og starfsfólk, auk þess sem byggingin er hönnuð og byggð í samræmi við alþjóðlega umhverfisvottunarkerfið BREEAM.



Yfirlit verkefnis

Nýja þjóðgarðsmiðstöðin er á einni hæð og skiptist í tvo meginhluta. Suðurhlutinn nefnist Jökulhöfði og vísar nafnið til Snæfellsjökuls, en norðurhlutinn nefnist Fiskbeinið og vísar til fengsælla fiskimiða við Snæfellsnes.

Í gegnum bygginguna liggur Þjóðvegurinn, gönguleið sem gerir gestum kleift að ganga þvert í gegnum húsið, bæði innan dyra og utan, meðal annars uppi á þaki.

Í húsinu er þjónustumiðstöð þjóðgarðsins með sýningar- og kennsluaðstöðu, auk skrifstofa, geymslna og aðstöðu fyrir þjóðgarðsverði.

Verkís sá um hönnun rafkerfa byggingarinnar sem hluti af þverfaglegu hönnunarteymi Arkís, Verkís, Eflu og Lisku. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið og Umhverfisstofnun stóðu að verkefninu og FSRE hafði umsjón með framkvæmdum.

710

Stærð byggingar





Áskorunin

Að skapa nútímalega og aðgengilega þjóðgarðsmiðstöð sem sameinar þjónustu við gesti, sýningar- og kennslustarfsemi og góða vinnuaðstöðu fyrir starfsfólk, en fellur jafnframt vel að náttúru og sérkennum Snæfellsness.

Jafnframt þurfti að hanna bygginguna með áherslu á umhverfisvænar lausnir og kröfur BREEAM-vottunar.

Lausnin okkar

Verkís sá um hönnun rafkerfa fyrir bygginguna og vann náið með öðrum aðilum hönnunarteymisins að samræmdri og heildstæðri hönnun.

Byggingin var útfærð með fjölbreyttu rými fyrir gesti og starfsfólk og með gönguleiðinni „Þjóðveginum“ er skapað einstakt flæði í gegnum húsið og upp á þak þess.

Niðurstaðan

Ný þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi er 710 m² þjónustu- og fræðslumiðstöð sem styrkir aðstöðu þjóðgarðsins og upplifun gesta á svæðinu.

Byggingin sameinar þjónustu, fræðslu og sýningar í umhverfisvænu mannvirki sem er hannað í samræmi við BREEAM og tekur mið af sérstöðu náttúru og samfélags á Snæfellsnesi.


Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:


Stykkishólmi


Stærð:


710 m²


Verktími:


2023


Þjónusta Verkís





Heimsmarkmið