Verkefni

Sundlaug Hofsósi

Byggingin stendur við brún sjávarbakkans með útsýni til hafs, yfir Skagafjörðinn

Sundlaugarsvæðið samanstendur af 25 m útilaug og sambyggðum potti og vaðlaug.

Burðarvirki eru steinsteypt og að miklu leyti með sjónsteypu. Útveggir á langhliðum eru úr glereiningum. Á þakinu er gras og tengist það landinu umhverfis laugina.
 
Í þeim enda laugarinnar sem snýr að Drangey er laugin án sýnilegs kants þannig að vatnsflöturinn á lauginni og hafflöturinn renna saman í eina heild. Laugarkerfin eru hefðbundin með sandsíum til hreinsunar og klór notaður til sótthreinsunar.
 
Verkís annaðist hönnun burðarvirkis, fráveitu-, hreinlætis- og hitalagna, loftræsilagna, sundlaugakerfa og raflagna.
 
Sundlaug Hofsósi vann menningarverðlaun DV í mars 2011 vegna byggingarlistar og Steinsteypuverðlaunin í febrúar 2011, fyrir framúrskarandi gæði og listrænan árangur við notkun steinsteypu í byggingum. Einnig tilnefnd sem eitt af fimm íslenskum mannvirkjum til Mies van der Rohe verðlaunanna 2011 og kosin besta sundlaug landsins í skoðanakönnun DV í júlí 2011.

Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:

Hofsós

Stærð:

378 m²

Verktími:

2008-2010

 

Heimsmarkmið