Verkefni

Skessan

Í Skessunni er fótboltavöllur í fullri stærð.

Og gert er ráð fyrir áhorfendasvæði fyrir 400 manns auk þess að lágbygging er vestan við húsið.

Sjálft knatthúsið er staðlað dúkklætt stálgrindarhús á steyptum undirstöðum. Húsið er óupphitað með Fifa Quality Pro gervigrasi með vökvunarkerfi. Undirstöður knatthúss og anddyrisbyggingar eru steyptar.
 
Veggir í knatthúsi eru steyptir upp í 2,5 m hæð þar sem tekur við burðarvirki úr stáli. Þak knatthúss er klætt PVC húðuðum og akrýllökkuðum polyesterdúk. Lágbyggingin er einangruð. Húsið er á einni hæð þar sem gengið er inn í anddyri hússins að vestanverðu. Í vesturhluta hússins eru búningsklefar, salernisaðstaða, söluaðstaða, geymslur og inntaksrými.
 
Grunnflötur byggingarinnar er um 8.500 m².
 
Verkís sá um fullnaðarhönnun verksins.

Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:

Hafnarfjörður

Stærð:

8.500 m²

Verktími:

2017-2019

 

Heimsmarkmið