Skip to content

Verkefni

Sjúkrahótel Landspítalans

Sjúkrahótelið er fyrsti áfangi í heildaruppbyggingu Nýs Landspítala við Hringbraut.



Yfirlit verkefnis

Sjúkrahótel Landspítalans er fyrsti áfanginn í heildaruppbyggingu Nýs Landspítala við Hringbraut. Hótelið er ætlað sjúklingum sem þurfa að dvelja nálægt sjúkrahúsinu fyrir eða eftir meðferð og er mikilvægt úrræði fyrir þá sem ekki þurfa innlögn á sjúkrahús en þurfa áfram að vera í nágrenni við heilbrigðisþjónustu.

Sjúkrahótelið nýtist meðal annars sjúklingum sem bíða eftir aðgerð eða þurfa að jafna sig eftir skurðaðgerð. Einnig geta barnshafandi konur og krabbameinssjúklingar nýtt sér aðstöðuna. Með þessu er skapað hentugt dvalarúrræði fyrir fjölbreyttan hóp sjúklinga og aðstandenda þeirra.

Byggingin er fjórar hæðir auk kjallara og þar eru 75 herbergi. Gert er ráð fyrir aðgengilegum herbergjum fyrir fatlað fólk og stærri herbergjum sem henta fjölskyldum. Við hönnun og framkvæmd verkefnisins var því lögð áhersla á að tryggja öruggt og aðgengilegt umhverfi sem mætir ólíkum þörfum notenda.

Verkís kom að verkefninu með brunatæknilegri hönnun og hljóðhönnun auk byggingarstjórnar og framkvæmdaeftirlits.

4258m²

Stærð byggingar



75

Herbergi



Áskorunin

Sjúkrahótel þarf að mæta ólíkum þörfum fólks sem dvelur þar vegna heilbrigðisþjónustu. Mikilvægt er að tryggja að byggingin sé örugg, aðgengileg og hljóðvistin góð, jafnframt því sem taka þarf mið af sértækum kröfum sem gilda um húsnæði í tengslum við heilbrigðisþjónustu.

Lausnin okkar

Verkís sá um brunatæknilega hönnun og hljóðhönnun verkefnisins. Þar var lögð áhersla á að brunavarnir og hljóðvist væru samþættar hönnun byggingarinnar og tækju mið af notkun hennar.

Verkís kom jafnframt að framkvæmd verkefnisins með byggingarstjórn og framkvæmdaeftirliti og fylgdi þannig eftir hönnun og framkvæmd á verkstað.

Niðurstaðan

Sjúkrahótelið veitir sjúklingum fjölbreyttan og aðgengilegan dvalarkost í tengslum við Landspítalann. Með 75 herbergjum, aðgengilegri aðstöðu og fjölskylduherbergjum er húsnæðið hannað fyrir ólíkar þarfir notenda.

Verkís tryggði með sérfræðiþekkingu á brunamálum, hljóðvist og framkvæmdastjórnun að mikilvægir öryggis- og notkunarþættir verkefnisins væru teknir til greina frá hönnun til framkvæmdar.


Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:


Hringbraut, Reykjavík


Stærð:


4.258 fermetrar


Verktími:


2015 – 2019






Heimsmarkmið