Garðabær óskar eftir tilboðum í framkvæmdaverkið ÁLFTANES, MIÐSVÆÐI, Svæði 1 – Breiðamýri, Stígar – yfirborðsfrágangur.
Verkið felst í að ljúka yfirborðsfrágangi í miðsvæði hverfisins Breiðumýrar á Álftanesi. Um er að ræða malbikun á aðalstíg í gegnum svæðið, gröft, fyllingu og burðarlag á þrjár stígtengingar frá Lambamýri og Grásteinsmýri inn á aðalstíginn ásamt lagningu á rafstrengjum og uppsetningu á ljósastaurum fyrir stíglýsingu. Auk þess er innifalinn frágangur yfirborðs, áningarstaða og leiksvæðis.
Helstu stærðir og magntölur eru eftirfarandi:
| Gröftur fyrir stígum og raflögnu | 315 m3 |
| Styrktarlag | 680 m3 |
| Burðarlag | 2.800 m2 |
| Malbikun | 2.000 m2 |
| Rafstrengir | 1.890 m |
| Uppsetning ljósastólpa og polla | 41 stk. |
| Úthagatorf | 1.000 m2 |
| Uppsetning bekkja | 12 stk. |
Verklok eru 20. desember 2026.
Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum sem eru rafræn og aðgengileg á útboðssíðu Verkís. Útboðsgögn eru aðgengileg frá og með 22. september 2026.
Tilboð skulu hafa borist fyrir 6. október 2026 kl. 14:00. Tilboð verða opnuð rafrænt þriðjudaginn 6. október 2026 kl. 15:00.
