Við vinnum af heilindum
Um er að ræða aðferð sem notuð hefur verið til að auka umferðaröryggi og minnka umhverfisáhrif umferðar. Farið er yfir slysagögn, merkingar og gefnar ráðleggingar í þeim tilgangi að lækka umferðarhraða, fækka umferðaróhöppum, bæta hljóðvist, auðvelda gangandi og hjólandi vegfarendum að komast örugglega yfir vegi, minnka ótta óvarinna vegfarenda og fegra umhverfi vegarins.
Verkís hefur unnið ýmis verkefni tengdum umferðar- og svæðisskipulagi, umferðaröryggi, gerð leiðbeininga um hraðalækkandi aðgerðir á þjóðvegum í þéttbýli og veitir heildstæða þjónustu á þessu sviði. Einnig ýmis verkefni tengdum umferðarkönnunum, umferðarspám og umferðartalningu.
Sérfræðingar okkar hafa áralanga reynslu af úttekt á umferðarkerfum og vinna stöðugt að það í auka umferðaröryggi allra í umferðinni. Markmiðið er ávallt að koma í veg fyrir banaslys eða alvarleg slys á þeim sem í umferðinni eru, sama hvaða ferðamáta þeir kjósa sér.
Við tökum hlutverk okkar þegar kemur að umferðaröryggi afar alvarlega og vinnum af heilindum til að bæta öryggi samborgara okkar.
Þjónusta
- Ráðgjöf varðandi rekstur og viðhald vegakerfa
- Úttekt á umferðarkerfi sveitafélaga
- Hönnun þjóðvega þar sem þeir fara um þéttbýli
- Umferðarspár, umferðarkannanir og umferðartalningar
- Vinnusvæðamerkingar
Verkefni
- Höfðinn
- Forgangsakreinar Strætó á höfuðborgarsvæðinu
- Þróun snjallsímaforrits til að framkvæma ferðavenjukannanir
- Umferðarhermun allra stærri gatnamóta á höfuðborgarsvæðinu
- Hraðalækkandi aðgerðir í Borgarnesi, Kleppjárnsreykjum og Grundarfirði