Skip to content
28/08/2026

WHISPER-verkefnið í sjóprófanir með vind- og sólarorkugámum

Gámaskipið Helgafell

Evrópska nýsköpunarverkefnið WHISPER, sem Verkís leiðir, hefur náð mikilvægum áfanga með uppsetningu vindorkugáma frá íslenska tæknifyrirtækinu SideWind og sérhannaðra sólarsellna frá Solbian um borð í gámaskipinu Helgafelli frá Samskipum.

Búnaðurinn var settur um borð í Árósum í Danmörku og hófust sjóprófanir strax í kjölfarið. Prófanirnar fara fram í fjórum áætlunarferðum næstu þrjá mánuði og munu veita mikilvægar upplýsingar um virkni, stýringu og afköst hins samþætta vind- og sólarorkukerfis við raunverulegar rekstraraðstæður.

Láréttir vindhverflar SideWind eru byggðir inn í sérútbúna gáma með sólarsellum frá Solbian á þökunum. Lausnin er hönnuð sem retrofit-lausn, sem hægt er að setja upp í skip sem þegar eru í rekstri með lágmarksbreytingum á skipinu sjálfu.

Íslensk sérþekking í evrópsku verkefni

WHISPER er undir forystu Verkís og fimm af 13 samstarfsaðilum verkefnisins eru íslensk fyrirtæki: Verkís, SideWind, Samskip, BBA//Fjeldco og Athygli.

„Verkefni á borð við WHISPER eru mikilvægur þáttur í orkuskiptum í siglingum. Þar eru þróaðar sveigjanlegar einingalausnir sem hægt er að setja í skip sem þegar eru í rekstri og nýta þannig endurnýjanlega orku sem er til staðar á hafi úti. Slíkar lausnir eru öflug viðbót við þá mikilvægu þróun sem þegar á sér stað í höfnum,“ segir Carine Chatenay, byggingaverkfræðingur hjá Verkís og verkefnastjóri WHISPER.

Sjóprófanirnar á Helgafelli eru hluti af umfangsmikilli prófunaráætlun WHISPER á tæknilausnum í raunstærð. Fyrr í ágúst hófust einnig sjóprófanir á OceanWings-vængseglum og Solbian-sólarsellum um borð í Maria Topic, Ultramax-magnflutningaskipi Ant. TOPIC.

Lesa fréttatilkynningu WHISPER um sjóprófanir á Helgafelli:

WHISPER installs hybrid wind-solar container system and begins sea trials on container ship

Heimsmarkmið

Gámaskipið Helgafell

Deila þessari færslu