Verkís tók þátt í Steinsteypudeginum 2026
Steinsteypudagurinn 2026 fór fram 27. febrúar á Grand Hótel í Reykjavík. Ráðstefnan, sem haldin er af Steinsteypufélagi Íslands, er árlegur vettvangur fagfólks í mannvirkjagerð þar sem fjallað er um þróun, áskoranir og nýjungar í notkun steinsteypu á Íslandi.
Kuldabrýr í brennidepli – frá rannsókn til framkvæmdar
Ágúst Pálsson, vélaverkfræðingur hjá Verkís, flutti erindi undir yfirskriftinni „Kuldabrýr – vanmetinn skaðvaldur í íslenskum byggingum“. Þar fjallaði hann um áhrif kuldabrúa á orkunýtingu, rakaástand og endingu bygginga og lagði áherslu á mikilvægi nákvæmrar greiningar í hönnun.
Í erindi sínu kom hann jafnframt inn á lokaverkefni sitt, „Rakaþétting vegna kuldabrúa í íslenskum útveggjum – Töluleg hermun á áhrifum loftflæðis á innilofti“, þar sem rannsakað var hvernig samspil kuldabrúa, loftflæðis og yfirborðshita getur aukið líkur á rakaþéttingu við íslenskar aðstæður. Niðurstöðurnar benda til þess að áhrif kuldabrúa geti verið vanmetin og að hefðbundnir útreikningar taki ekki alltaf fullnægjandi tillit til loftflæðis og raunverulegra aðstæðna.
Ágúst hlaut nemendaverðlaun Steinsteypufélags Íslands fyrir verkefnið á ráðstefnunni.
Viðfangsefnið hefur hann einnig tekið til ítarlegrar umfjöllunar í grein í Sigmál, fréttabréfi Steinsteypufélags Íslands. Hægt er að skoða blaðið hér
Sjálfbærni, kolefnisspor og steypuarfurinn
Eftir hádegi var sjónum beint að umhverfisáhrifum steypu og kolefnisspori mannvirkja. Fjallað var um vistferilsgreiningar (LCA), þróun nýrra sementslausna og leiðir til að draga úr losun í framkvæmdum. Umræðan endurspeglar þær breytingar sem eru að eiga sér stað í greininni, þar sem auknar kröfur eru gerðar um gagnsæi, mælanleika og sjálfbærni.
Ráðstefnunni lauk með erindi Andra Snæs Magnasonar þar sem hann velti upp spurningunni hver beri ábyrgð á steypuarfinum. Að því loknu fóru fram líflegar pallborðsumræður undir stjórn Þórarins Hjartarsonar, sem heldur úti hlaðvarpinu Ein pæling.
Óformlegt samtal að lokinni dagskrá
Að lokinni ráðstefnu buðu Aalborg Portland og Björgun-Sement upp á veitingar þar sem þátttakendur áttu kost á óformlegu spjalli og áframhaldandi umræðu um málefni dagsins.
Steinsteypudagurinn er mikilvægur vettvangur fyrir faglega umræðu um gæði, öryggi og sjálfbærni mannvirkja. Þátttaka Verkís í ráðstefnunni og viðurkenning fyrir rannsóknarverkefni starfsmanns endurspegla áherslu fyrirtækisins á þekkingaruppbyggingu og virka þátttöku í þróun byggingariðnaðarins.
