Skip to content
05/03/2026

Verkís tók þátt í Íslensk-indversku viðskiptaþingi

© www.isin.is
Haukur Þór Haraldsson, Viðskiptaþróunarstjóri Verkís, var einn af frummælendum þingsins
www.isin.is

Íslensk-indverskt viðskiptaþing fór fram á Grand Hótel Reykjavík 4. mars þar sem fulltrúar fyrirtækja, stofnana og stjórnvalda frá Íslandi og Indlandi komu saman til að ræða aukið samstarf milli landanna. Viðburðurinn var haldinn af Íslensk-indverska viðskiptaráðinu í samstarfi við indverska sendiráðið á Íslandi, Íslandsstofu og Indversk-íslensku viðskiptasamtökin (Indo-Icelandic Business Association, IIBA).

Tilefni þingsins var heimsókn fjölmennrar viðskiptasendinefndar frá Indlandi sem kom til Íslands til að efla tengsl fyrirtækja og skapa ný tækifæri til samstarfs.

Viðburðinn opnaði Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og í framhaldinu flutti Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, erindi. Logi er nýkominn úr heimsókn til Indlands þar sem hann tók þátt í alþjóðlegum leiðtogafundi um gervigreind.

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, ræða hér við gesti ©www.isin.is

Samstarf Íslands og Indlands á sviði jarðhita

Haukur Þór Haraldsson, viðskiptaþróunarstjóri hjá Verkís, var meðal frummælenda á þinginu. Í erindi sínu fjallaði hann um tækifæri til aukins samstarfs Íslands og Indlands á sviði jarðhita og annarrar endurnýjanlegrar orku.

Í erindinu kom fram að Indland standi frammi fyrir hröðum vexti í raforkuþörf og mikilli uppbyggingu orkukerfa á næstu árum. Þar geti íslensk þekking á nýtingu jarðvarma gegnt mikilvægu hlutverki, meðal annars við þróun nýrra orkukosta og sjálfbærra orkukerfa.

Haukur fjallaði meðal annars um þátttöku Verkís í þróun jarðhitaverkefnisins Puga í Ladakh, sem er eitt af lengra komnu jarðhitaverkefnum Indlands. Verkís hefur þar komið að verkefninu í samstarfi við meðal annars ÍSOR og aðra alþjóðlega samstarfsaðila með ráðgjöf um jarðfræði, borholuprófanir og frumhönnun yfirborðsbúnaðar og orkuvers.

Ný tækifæri til samstarfs

Í erindinu var einnig fjallað um áframhaldandi samstarf við stjórnvöld í indverska ríkinu Uttarakhand þar sem unnið er að mati á jarðhitaauðlindum og undirbúningi tilraunaverkefna á sviði jarðvarma.

Á sama tíma hefur verið stigið mikilvægt skref í uppbyggingu samstarfsins með stofnun félagsins TechonVerkis Engineers Pvt. Ltd. í Nýju Delí fyrr á þessu ári. Félagið er sameiginlegt verkefni Verkís og indverska verkfræðifyrirtækisins Techon og hefur það markmið að styðja við þróun jarðhitaverkefna og aðra orkutengda uppbyggingu í Indlandi.

Viðskiptaþingið var vettvangur fyrir samtal og tengslamyndun milli fyrirtækja frá báðum löndum og undirstrikaði þau tækifæri sem felast í auknu samstarfi Íslands og Indlands á sviði orku, nýsköpunar og innviða.

Heimsmarkmið

Haukur Þór Haraldsson, Viðskiptaþróunarstjóri Verkís, var einn af frummælendum þingsins
© www.isin.is