Verkís tók þátt í HYDRO 2026
Verkís tók þátt í alþjóðlegu ráðstefnunni HYDRO 2026, sem fór fram í Bologna á Ítalíu dagana 14.–16. október. Þátttakan var á vegum Green by Iceland, þar sem Verkís kom fram á sameiginlegum íslenskum bás ásamt Landsvirkjun, EFLU og COWI. Auk þess fluttu sérfræðingar Verkís erindi um reynslu af hönnun varnargarða við Grindavík og Svartsengi.
Íslensk þekking á alþjóðlegum vettvangi
HYDRO er alþjóðlegur vettvangur fyrirtækja og sérfræðinga á sviði vatnsafls og stíflumannvirkja. Þar komu saman sérfræðingar víðs vegar að úr heiminum til að miðla þekkingu, kynna nýjar lausnir og ræða áskoranir og tækifæri í þróun vatnsafls og endurnýjanlegrar orku.
Með þátttöku á sameiginlegum íslenskum bás gafst tækifæri til að kynna íslenska verkfræðiþekkingu og reynslu á sviði orkuvinnslu og mannvirkjagerðar.
Erindi um varnargarða við Grindavík og Svartsengi
Hörn Hrafnsdóttir, Sólveig Kristín Sigurðardóttir og Emilía Sól Guðgeirsdóttir, sérfræðingar hjá Verkís, fluttu erindi á ráðstefnunni undir heitinu Lava protection barriers in Southwest Iceland – How hydropower engineers have battled with nature.
Í erindinu fjölluðu þær um hönnun varnargarða sem reistir hafa verið til að verja Grindavík og Svartsengi fyrir hraunrennsli. Þær fjölluðu meðal annars um hvernig reynsla og þekking á hönnun vatnsaflsvirkjana og stíflumannvirkja nýttist við þessar óvenjulegu aðstæður, auk líkanreikninga, hönnunar varnargarðanna og þeirrar þekkingar sem varð til í verkefninu.
Verkefnið er dæmi um hvernig þverfagleg þekking og reynsla af krefjandi innviðaverkefnum getur nýst við nýjar og óvæntar áskoranir.
Þekking og samstarf í þágu endurnýjanlegrar orku
Þátttaka Verkís á HYDRO 2026 skapaði tækifæri til að miðla íslenskri sérfræðiþekkingu, eiga samtal við alþjóðlega sérfræðinga og efla samstarf á sviði vatnsafls og endurnýjanlegrar orku.
