Skip to content
23/10/2026

Verkís tók þátt í alþjóðlegri ráðstefnu um plastmengun í hafi

Arnór Þórir Sigfússon hélt erindi við opnun ráðstefnunnar

Verkís tók þátt í alþjóðlegu ráðstefnunni Atlantic Plastics 2026, sem haldin var í Hörpu dagana 20.–22. október. Á ráðstefnunni komu saman vísindafólk og sérfræðingar víðs vegar að úr heiminum til að fjalla um plastmengun í hafi, útbreiðslu hennar og mögulegar lausnir.

Verkís tók þátt í opnun ráðstefnunnar með stuttu erindi og var einnig með kynningarbás. Þar gátu gestir kynnt sér flöskuskeyti Verkís, sem voru sett í sjóinn við Eldey árið 2016, og skoðað ferðir þeirra í vefsjá Verkís.

Flöskuskeyti leiddu til rannsókna á geirfuglinum

Ferðir flöskuskeytanna urðu vísindafólki innblástur að rannsóknum á geirfuglinum. Skeytin, sem voru búin GPS-móttökutækjum og gervihnattasendum, flutu um Norður-Atlantshafið með vindum, öldum og hafstraumum áður en þau tóku land í Skotlandi og Færeyjum.

Ferðir þeirra vöktu áhuga Dr. Jessicu Thomas og samstarfsfólks hennar, sem rannsakaði erfðaefni geirfugla til að kanna þróun stofnsins og ástæður útrýmingar hans. Niðurstöður rannsóknarinnar birtust í vísindagreininni Demographic reconstruction from ancient DNA supports rapid extinction of the great auk, sem Arnór Þórir Sigfússon, dýravistfræðingur, og Vigfús Arnar Jósefsson, vélaverkfræðingur hjá Verkís, eru meðhöfundar að.

Á bás Verkís á ráðstefnunni gátu gestir séð tvö upprunalegu flöskuskeytin, myndir af ferðum þeirra og vefsjá þar sem hægt er að fylgjast með leiðum þeirra um heimshöfin. Verkefnið sýnir hvernig gögn um ferðir skeytanna geta varpað ljósi á hafstrauma og tengsl milli svæða.

Alþjóðlegt samstarf í þágu heilbrigðari hafs

Atlantic Plastics 2026 var þriðja alþjóðlega ráðstefnan sem íslensk stjórnvöld stóðu að um plastmengun í hafi. Að þessu sinni náði umfjöllunin yfir Atlantshafið frá norðri til suðurs, með áherslu á uppruna og dreifingu plasts, áhrif þess á lífríki og heilsu fólks og leiðir til að draga úr mengun.

Ráðstefnan skapaði vettvang fyrir miðlun rannsóknarniðurstaðna og alþjóðlegt samstarf um sameiginlegar áskoranir og mögulegar lausnir.

 

Í vefsjá á vefsíðu Verkís er hægt að fylgjast með ferðum gæsa og skoða leiðir þeirra á korti. Skoðaðu vefsjána.

Heimsmarkmið

Arnór Þórir Sigfússon hélt erindi við opnun ráðstefnunnar

Deila þessari færslu