Skip to content
31/03/2026

Verkís tók á móti sendinefnd frá Ungverjalandi

Sendinefndin ásamt fulltrúum Verkís

Verkís fékk í síðustu viku heimsókn frá ungverskri sendinefnd undir forystu loftslagsfulltrúans Barbara Wassen, ásamt sendiherra Ungverjalands á Íslandi, Kristóf Altusz, og viðskiptafulltrúanum Bálint Bűcs.

Tilgangur heimsóknarinnar var að kynna sér starfsemi Verkís og ræða tækifæri til samstarfs á sviði orkuskipta, jarðvarma og sjálfbærrar þróunar.

Á fundinum var farið yfir reynslu og hlutverk Verkís í orkuskiptum á Íslandi og á alþjóðavettvangi, auk þess sem rætt var um þróun jarðvarma og hitaveitna, bæði hér á landi og í Ungverjalandi. Þá voru snert á tækifærum til frekara samstarfs, meðal annars á sviði nýsköpunar, stafrænnar þróunar orkukerfa og mögulegrar þátttöku í alþjóðlegum verkefnum, svo sem innan Evrópusambandsins.

Frá Verkís tóku þátt Egill Viðarsson, framkvæmdastjóri, Carine Chatenay, markaðsviðskiptastjóri orkusviðs, Elín Vignisdóttir, sjálfbærnistjóri, og Haukur Þór Haraldsson, viðskiptaþróunarstjóri.

Heimsóknin var gagnleg og staðfesti mikilvægi alþjóðlegs samstarfs við þróun sjálfbærra orkulausna til framtíðar.

Heimsmarkmið

Sendinefndin ásamt fulltrúum Verkís