19/10/2020

Verkís tekur þátt í ráðstefnu Autodesk

Verkís tekur þátt í ráðstefnu Autodesk
Autodesk

Verkís tekur þátt í ráðstefnu Autodesk. Sveinn Ingi Ólafsson, framkvæmdastjóri Verkís, tekur þátt í stafrænni ráðstefnu Autodesk fimmtudaginn 22. október nk. Yfirskrift ráðstefnunnar er „Let‘s Build a Resilient Future“ og er þátttaka ókeypis.

Á ráðstefnunni verða erindi, pallborðsumræður og einnig vinnustofur þar sem hægt verður að ræða við og eiga samskipti við aðra þátttakendur. Viðburðurinn verður tekinn upp og upptökurnar aðgengilegar eftir viðburðinn.

Sveinn Ingi tekur þátt í pallborðsumræðunum Return and Reimagine – AEC industry.Í pallborðinu munu fulltrúar arkitekta-, verkfræði- og byggingariðnaðarins líta til nútíðar og framtíðar innan sinna greina.

Frétt á vef Autodesk um ráðstefnuna

Verkís tekur þátt í ráðstefnu Autodesk
Autodesk