25/11/2026
Verkís tekur þátt í norrænni fyrirlestraröð um tæknimál sveitarfélaga
Verkís tekur þátt í norrænni fyrirlestraröð um tæknimál sveitarfélaga sem fram fer dagana 23.–26. nóvember 2026 á vegum Samtaka tæknimanna sveitarfélaga (SATS). Fyrirlestraröðin er hluti af norrænu samstarfi um miðlun þekkingar og reynslu á sviði sveitarfélaga, skipulagsmála og mikilvægra innviða.
Fimmtudaginn 26. nóvember kl. 13.00 flytur Hörn Hrafnsdóttir, vatnsauðlindaverkfræðingur hjá Verkís, erindi fyrir hönd Íslands undir yfirskriftinni Lava Barrier Design and Construction: Resilience Through Robust Simplicity.
Í erindinu fjallar Hörn um hönnun og gerð hraunvarnargarða við Grindavík og Svartsengi, þar sem markmiðið er að vernda byggð og mikilvæga innviði. Fjallað verður um hvernig öflugt samstarf ólíkra aðila, stöðugt áhættumat og nýting þrívíddarlíkana gerðu kleift að vinna að hönnun og framkvæmdum samhliða á afar skömmum tíma. Verkefnið sýnir hvernig einfaldar og traustar lausnir geta skipt sköpum þegar bregðast þarf hratt við náttúruvá.
Fyrirlestraröðin ber yfirskriftina Tæknimenn sveitarfélaga á Norðurlöndum – þegar mest á reynir og tekur til fjölbreyttra verkefna og lausna frá Svíþjóð, Finnlandi, Noregi og Íslandi. Meðal umfjöllunarefna eru snjallorkulausnir, sjálfbærar borgir, drónar í borgarumhverfi og notkun gagna við ákvarðanatöku.
Markmið fyrirlestraraðarinnar er að styrkja samstarf og þekkingarmiðlun milli Norðurlandanna og varpa ljósi á hvernig tækni og fagleg þekking geta styrkt öryggi og mikilvæga innviði samfélaga.
Fyrirlestrarnir eru á ensku, fara fram í gegnum Teams, öllum opnir og standa yfir í eina klukkustund. Engin skráning er nauðsynleg.
Farið er í gegnum QR kóða til að fá aðgang að fyrirlestri, sjá hér.
