Verkís tekur þátt í hönnun Blikastaða
Verkís tekur þátt í hönnun Blikastaða. Mosfellsbær og Reitir vinna saman að undirbúningi deiliskipulags fyrir Blikastaði, nýjan atvinnukjarna í Mosfellbæ, sem skipulagður er með náttúru, sjálfbærni og samnýtingu að leiðarljósi. Verkís verkfræðistofa sér um verkfræðilega hönnun.
Hönnuðir deiliskipulagsins eru ARKÍS arkitektar, Landslag – teiknistofa sér um landslagshönnun og Mannvit er vottunaraðili skipulagsins gagnvart BREEAM. Undir verkfræðilega hönnun fellur m.a. annars, umferðarmálefni, blágrænar ofanvatnslausnir, umhverfismál, ljós- og hljóðvist, orkumál.
Hér er hægt að kynna sér verkefnið.
Í dag eru Blikastaðir opið svæði og óbyggt en fyrirhugað er að þróa þar atvinnukjarna fyrir þjónustu og léttan iðnað. Meðal markmiða við deiluskipulagsgerð svæðisins er að haga skipulagi gatna, lóða, húsa og annarra mannvirkja þannig að þau raski sem minnst aðliggjandi náttúru og lífríki og að hafa sjálfbærni að leiðarljósi við útfærslu skipulags og bygginga þannig að hin nýja byggð verði jákvæð viðbót við núverandi umhverfi, samfélag og efnahag.
Viljayfirlýsing um uppbyggingu Blikastaða var undirrituð í júní árið 2019. Nú er búið að kynna deiliskipulag á vinnslustigi og verður deiliskipulagið auglýst í ágúst. Gatnagerð hefst á næsta ári og gert er ráð fyrir að svæðið verði byggt upp á tíu árum, frá 2021-2030. Þá er áætlað að Borgarlínan fari í gegnum svæðið árið 2030.