Skip to content
10/09/2026

Verkís tekur þátt í gangsetningu 35 MW jarðvarmavirkjunar í Kenýa

Menengai

Verkís hefur komið að uppbyggingu nýrrar 35 MW jarðvarmavirkjunar á Menengai jarðhitasvæðinu í Kenýa sem ráðgjafi eiganda (e. Owner’s Engineer) fyrir verkefnið. Virkjunin er í eigu Globeleq og Fuji Electric og er eitt af þremur sjálfstæðum orkuverum sem reist hafa verið á svæðinu.

Gangsetning hófst í maí

Í upphafi maí fór fram gangsetning virkjunarinnar og voru fulltrúar Verkís á staðnum við prófanir og yfirferð á vélasamstæðu orkuversins. Þorleikur Jóhannesson hjá Verkís tók þátt í svokölluðu „Performance Test“ ferli þar sem staðfest er að búnaður standist þær afkastakröfur sem hann var hannaður fyrir áður en endanleg afhending fer fram. „Eftir fjóra daga af prófunum voru fyrstu keyrslur vélasamstæðunnar mjög lofandi,“ sagði Þorleikur í færslu sem hann birti frá verkefninu.

Mikilvægur áfangi í stóru orkuverkefni

Verkefnið er á vegum Globeleq, sem er leiðandi fyrirtæki á sviði þróunar, fjármögnunar, byggingar og reksturs orkuframkvæmda í Afríku. Heildarfjárfesting verkefnisins nemur um 117 milljónum Bandaríkjadala og hefur verið fjármögnuð meðal annars af Afríkuþróunarbankanum (AfDB), Trade and Development Bank (TDB) og Finnfund. Verkís hefur gegnt lykilhlutverki sem ráðgjafi eiganda og veitt tæknilega ráðgjöf í gegnum verkefnið með það að markmiði að tryggja að virkjunin sé hönnuð og framkvæmd samkvæmt ströngustu gæðakröfum. Toyota Tsusho Corporation og dótturfélag þess, CFAO Kenya, sáu um hönnun, innkaup og byggingu virkjunarinnar.

Hluti af uppbyggingu endurnýjanlegrar orku í Kenýa

Menengai-svæðið er eitt af stærri jarðvarmasvæðum í Kenýa. Gufuöflun er í höndum ríkisfyrirtækisins Geothermal Development Company (GDC), sem sér um boranir og afhendingu gufu til sjálfstæðra orkuframleiðenda (IPP) sem framleiða rafmagn fyrir Kenya Power.

Verkefnið er hluti af metnaðarfullum markmiðum stjórnvalda í Kenýa um að ná 100% raforkuframleiðslu með endurnýjanlegum orkugjöfum fyrir árið 2030.

Alþjóðleg reynsla og íslensk þekking

Verkefnið er enn eitt dæmið um alþjóðlega starfsemi Verkís á sviði jarðvarma, þar sem íslensk sérfræðiþekking nýtist við uppbyggingu sjálfbærra orkukerfa víða um heim.

Heimsmarkmið

Menengai

Deila þessari færslu