04/11/2024
Verkís styrkir Landsbjörg með kaupum á stóra Neyðarkallinum
Verkís styrkir Landsbjörg með kaupum á Neyðarkallinum. Verkís er stolt af því að hafa innan sinna raða starfsfólk sem vinnur óeigingjarnt starf í þágu björgunarsveita á Íslandi.
Á myndinni má sjá Egil Viðarsson framkvæmdastjóra Verkís taka við Neyðarkallinum af Auði Atladóttur, byggingarverkfræðingi og Margréti Ír Jónsdóttur, verkfræðinema hjá Verkís.
Samhliða sölunni á Neyðarkallinum selja björgunarsveitirnar fyrirtækjum stærri neyðarkalla. Líkt og síðustu ár kaupir Verkís kallinn ásamt því að leggja málefninu lið með fjárframlagi. Í ár er neyðarkallinn hamfarakall.