Skip to content
23/03/2026

Verkís styrkir kaup á suðuhermum fyrir Tækniskólann

Verkís hefur styrkt minningarsjóð Tækniskólans um Rafn Magnússon rafsuðukennara með framlagi til kaupa á suðuhermum sem nýtast við kennslu í málmsuðu.

Styrkurinn er liður í átaki sem miðar að því að efla verklega kennslu og bæta aðstöðu nemenda til að læra suðu með nýjustu tækni.

Nútímaleg kennslutæki efla færni og sjálfbærni

Suðuhermar eru nútímaleg kennslutæki sem gera nemendum kleift að æfa sig án þess að nota raunverulegt efni. Þannig má draga úr kostnaði og umhverfisáhrifum á sama tíma og gæði kennslu aukast.

Hermarnir voru afhentir við hátíðlega athöfn á Skrúfudaginn laugardaginn 21. mars, þar sem fjölmargir gestir komu saman til að fagna iðn- og tæknimenntun.

Mikilvægt framlag til framtíðar iðngreina

Málmsuða er lykilþáttur í uppbyggingu og viðhaldi innviða, meðal annars í orku- og iðnaðargeiranum. Með tilkomu nýrra staðla og aukinna gæðakrafna hefur þörfin fyrir vel menntað fagfólk aukist.

Með stuðningi við verkefni sem þetta vill Verkís leggja sitt af mörkum til að efla tæknimenntun og styðja við framtíð iðngreina á Íslandi.