Skip to content
14/09/2026

Verkís og Brunatæknifélag Íslands héldu morgunfund um ATEX

Georges Jan og Björn Ingi

Verkís og Brunatæknifélag Íslands stóðu fyrir morgunfundi föstudaginn 11. september þar sem fjallað var um sprengifimt andrúmsloft í vinnuumhverfi (ATEX).

Fyrirlesarar voru Georges Jan Guigay, brunaverkfræðingur, PhD, og Björn Ingi Sverrisson, rafmagnstæknifræðingur, sem báðir starfa hjá Verkís.

Í fyrirlestrinum fóru Georges og Björn Ingi yfir ATEX-reglugerðina og helstu atriði sem tengjast henni. Meðal annars var fjallað um hvar ATEX-reglur eiga við, ábyrgð vinnuveitenda, flokkun hættulegra vinnusvæða, búnað, varnarkerfi og merkingar.

Morgunfundurinn gaf þátttakendum tækifæri til að kynna sér betur þær kröfur og það verklag sem gildir þegar hætta er á sprengifimu andrúmslofti á vinnustöðum, auk þess að efla þekkingu á öryggi og vörnum við slíkar aðstæður.

Heimsmarkmið

Georges Jan og Björn Ingi

Deila þessari færslu