23/10/2019

Verkís með erindi á SDEC 2019

Verkís með erindi á SDEC 2019
SDEC 2019

Verkís með erindi á SDEC 2019. Verkís verður með erindi á ráðstefnunni SDEC 2019 sem haldin verður dagana 23.-25. október, ásamt því að vera með kynningarbás.

Þorleikur Jóhannesson, vélaverkfræðingur á Orkusviði Verkís, flytur erindið Development of geothermal district heating in Iceland and lessons learnt for other countries. 

Þar mun hann fjalla um uppbyggingu hitaveitu á Íslandi, með áherslu á Reykjavík og Vestmannaeyjar og erlendis, með áherslu á Kína. Þá mun hann segja frá því hvernig hefur verið hægt að miðla þekkingunni og reynslunni til annarra landa.

Þorleikur flytur erindi sitt á málstofunni Moving towards a low carbon society – Sustainable solutions, proposals and best practice á fimmtudag kl. 10.30.

Heimasíða ráðstefnunnar
Um Þorleik á heimasíðu SDEC

Verkís með erindi á SDEC 2019
SDEC 2019