Skip to content
28/10/2026

Verkís með erindi á Loftslagsdeginum

Gunnar Páll Eydal, umhverfis- og auðlindafræðingur og skipulagsfræðingur hjá Verkís, fjallaði um áskoranir við skipulagsgerð á lágsvæðum á Loftslagsdeginum 2026, sem haldinn var í Hörpu miðvikudaginn 28. október.

Skipulag í breyttu loftslagi

Erindi Gunnars Páls var hluti af málstofunni Samfélagsöryggi og loftslagsbreytingar, þar sem fjallað var um áhrif loftslagsbreytinga á öryggi samfélaga, skipulag og innviði framtíðarinnar.

Loftslagsbreytingar skapa nýjar áskoranir fyrir skipulagsgerð, meðal annars vegna hækkandi sjávarstöðu, aukinnar flóðahættu og annarra áhættuþátta sem geta haft áhrif á byggð og innviði. Mikilvægt er að taka mið af þessum þáttum við skipulag og uppbyggingu samfélaga til lengri tíma og stuðla þannig að auknu öryggi og viðnámsþoli gagnvart breyttum aðstæðum.

Loftslagsdagurinn 2026

Loftslagsdagurinn er árlegur viðburður þar sem sérfræðingar úr ólíkum geirum koma saman til að ræða loftslagsmál og áhrif þeirra á samfélag og atvinnulíf. Þema dagsins í ár var Loftslagsbreytingar og öryggi og á dagskrá voru meðal annars umræður um orkuöryggi, fæðuöryggi og samfélagsöryggi.

Nánari upplýsingar á vef Loftslagsdagsins.

Heimsmarkmið

Deila þessari færslu