10/01/2023

Verkís leiðir 1,4 milljarða króna nýsköpunarverkefni í orkuskiptum

Fréttir um WHISPER fóru víða
Á myndinni eru (frá vinstri): Baldvin Björn Haraldsson (BBA//FJELDCO), Anna Margrét Guðjónsdóttir (Evris) , Óskar Svavarsson (SideWind), María Kristín Þrastardóttir (SideWind), Guðmundur Óskarsson (Samskip), Kjartan Due Nielsen (Verkís), Bryndís Nielsen (Athygli).

Verkís leiðir 1,4 milljarða króna nýsköpunarverkefni í orkuskiptum.

Orkuskiptaverkefnið WHISPER hefur hlotið 1,4 milljarða króna styrk til fjögurra ára frá Evrópusambandinu. Verkefninu er ætlað að þróa og prófa nýsköpunarlausnir í orkuskiptum á sjó sem geta dregið verulega úr losun gróðurhúsaloftegunda hjá flutningaskipaflota heimsins.

WHISPER er fjölþjóðlegt samstarfsverkefni en íslensk fyrirtæki eru þar í meirihluta. Verkís verkfræðistofa leiðir verkefnið og aðrir íslenskir þátttakendur eru fyrirtækin SideWind, Samskip, BBA//FJELDCO og Athygli.

„WHISPER er mjög spennandi nýsköpunarverkefni sem fellur vel að áherslum okkar um orkuskipti, sjálfbærni og nýsköpun. Það skiptir líka máli að íslensk fyrirtæki taki þátt í þeirri þróun sem á sér stað erlendis á þessum vettvangi,“ segir Kjartan Due Nielsen, verkefnastjóri nýsköpunar hjá Verkís.

Evrópusambandið gerir miklar kröfur um reynslu og faglega verkefnastjórnun í verkefnum af þessari stærðargráðu. „Eftir viðræður við Evrópusambandið var okkur boðið að stýra verkefninu og bæta við fleiri verkþáttum og fá þannig aukið hlutverk innan verkefnisins sem við erum mjög stolt af“, segir Kjartan.

Fá íslensk einkafyrirtæki hafa fengið tækifæri til að taka slíkt að sér en Verkís mun auk þess að leiða WHISPER verkefnið, sjá um tæknilega verkefnastjórnun, vistferilsgreiningar og loftaflfræðilegar hermanir.

Þýðingarmikið fyrir orkuskipti á sjó

Lausnirnar felast í endurbótum á flutninga- og tankskipum sem eru nú þegar í rekstri (e. retrofit solutions). Þær felast í fyrsta lagi í blandaðri sólar- og vindorkutækni (e. Wind Solar Hybrid Power System) þar sem láréttar vindmillur SideWind og sérhannaðar sólarorkusellur framleiða raforku fyrir innri orkunotkun skipanna. Í öðru lagi verða þróuð rafstýrð segl sem hjálpa til við að knýja skipin áfram (e. Wind Assisted Propulsion System). Samhliða verður einnig unnið að geymslulausnum fyrir rafmagn.

Gangi áætlanir eftir er talið að hægt verði að draga úr eldsneytisnotkun tankskipa um tæp 30% og gámaskipa um að minnsta kosti 15%. Um 80-90% vöruflutninga í heiminum eru með flutningaskipum og fara vaxandi. Skipaflutningar losa 2,5% gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu. Því er til mikils að vinna og getur verkefnið haft mikið að segja þegar kemur að orkuskiptum á sjó.

Byr í segl SideWind

Samstarfsverkefnið byggir að hluta á vindorkulausn SideWind fyrir flutningaskip. Fyrirtækið var stofnað af hjónunum Maríu Kristínu Þrastardóttur og Óskari Svavarssyni árið 2019 og hefur vakið mikla athygli hérlendis.  „Það er nokkuð hröð þróun að fara á fjórum árum frá hugmynd við eldhúsborðið að evrópsku samstarfsverkefni sem nemur yfir níu milljónum evra, en við erum mjög spennt fyrir þeirri vinnu sem framundan er og hvað hún getur haft að segja fyrir baráttuna gegn loftslagsvánni,“ segir María.

Evris eflir íslenska nýsköpun 

Að verkefninu stendur öflugt og fjölbreytt teymi 14 fyrirtækja í fimm Evrópulöndum og var umsóknarferlinu, sem var bæði flókið og umfangsmikið, stýrt í gengum íslenska fyrirtækið Evris.

„Fundum okkar Óskars og Maríu hjá SideWind bar fyrst saman í upphafi árs 2019 og mér varð strax ljóst að þau væru með hugmynd sem ætti erindi á alþjóðlega markaði. Það hefur verið gefandi að fá að leiða þetta spennandi verkefni, í samstarfi við félaga mína hjá Inspiralia, í gegnum umsóknarferli Evrópusambandsins og setja saman hóp sem uppfyllir kröfur um þekkingu og reynslu sem Evrópusambandið gerir til verkefna af þessari stærðargráðu,“ segir Anna Margrét Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Evris. Hún hefur verið í samstarfi við alþjóðlega ráðgjafafyrirtækið Inspiralia Group frá árinu 2016 og hefur samstarfið skilað miklum fjármunum og þekkingu inn í íslenskt nýsköpunarumhverfi.

Þátttökufyrirtækin í WHISPER verkefninu eru: Verkís, SideWind, Samskip, BBA//FJELDCO og Athygli frá Íslandi; Canoe, Ayro og Stirling Design International frá Frakklandi; Solbian, Ant Topic og Dotcom frá Ítalíu; Nav-Tech frá Hollandi; Lloyds Register frá Bretlandi og Inspiralia GmbH frá Austurríki.

Heimsmarkmið

Fréttir um WHISPER fóru víða
Á myndinni eru (frá vinstri): Baldvin Björn Haraldsson (BBA//FJELDCO), Anna Margrét Guðjónsdóttir (Evris) , Óskar Svavarsson (SideWind), María Kristín Þrastardóttir (SideWind), Guðmundur Óskarsson (Samskip), Kjartan Due Nielsen (Verkís), Bryndís Nielsen (Athygli).