Skip to content
21/09/2026

Verkís kynnti starfsemi sína fyrir íslenskum DTU-nemum í Kaupmannahöfn 

Hópurinn frá Verkís sem tók á móti nemendum

Verkís tók á móti um 80 íslenskum verkfræðinemum við Tækniskólanum í Danmörku (DTU) í Færeyingahúsinu í Kaupmannahöfn föstudaginn 18. september. Nemendurnir stunda nám á fjölbreyttum sviðum, meðal annars byggingarverkfræði, rafmagnsverkfræði, iðnaðarverkfræði, vélaverkfræði, tölvunarfræði og hagnýtri stærðfræði. 

Það var vel mætt í Færeyingahúsinu

Áslaug Ósk sérfræðingur í mannauðsmálum, kynnti starfsemi Verkís og Davíð Thor sviðsstjóri Starfsstöðvasviðs, sagði frá aðkomu fyrirtækisins að nýrri Ölfusárbrú. Þá sagði Katla Ýr, meistaranemi í vélaverkfræði við DTU, frá reynslu sinni af sumarstarfi hjá Starfsstöðvasviði Verkís á Selfossi. Nemendur fengu þannig innsýn í fjölbreytt verkefni og þau tækifæri sem felast í starfi hjá Verkís.

Sigvaldi Örn og Steinar Logi, sem hafa unnið síðastliðin sumur hjá Verkís

Auk fyrirlesarana voru nokkrir stjórnendur og sérfræðingar frá Verkís á staðnum, meðal annars í tengslum við opnun nýrrar skrifstofu fyrirtækisins í Kaupmannahöfn daginn áður. Þar á meðal voru Egill Viðarsson framkvæmdastjóri Verkís, Eiríkur Steinn viðskiptastjóri og framkvæmdastjóri dótturfélagsins í Kaupmannahöfn, Haukur Þór viðskiptaþróunarstjóri, Inga Heiða sérfræðingur í mannauðsmálum og Sverrir rekstrarstjóri Samgöngu- og umhverfissviðs. Helgi Mednis, Sigvaldi Örn og Steinar Logi, sem starfa hjá Verkís samhliða námi við DTU, voru einnig með og gátu ásamt Kötlu Ýri frætt samnemendur sína um störf sín hjá fyrirtækinu. 

Katla Ýr hélt skemmtilega kynningu um verkefni sín í sumar

Boðið var upp á hamborgara, drykki og íslenskt nammi sem að sjálfsögðu sló í gegn. Staðsetningin í Færeyingahúsinu hentaði hópnum vel, enda var stór hluti gestanna á leið á tónleika með Herra Hnetusmjöri og Kristmundi Axel í Pumpehuset síðar um kvöldið. 

Heimsóknin var skipulögð í góðu samstarfi við nemendafélagið FÍVDTU og tókst afar vel. 

Verkís þakkar félaginu fyrir samstarfið og nemendum fyrir frábæra þátttöku, góðar samræður og einstaklega skemmtilega samveru. 

Heimsmarkmið

Hópurinn frá Verkís sem tók á móti nemendum

Deila þessari færslu