Skip to content
19/11/2026

Verkís kynnti nýjar lausnir í úrgangsmálum á ráðstefnu Grænna skáta

Verkís tók þátt í ráðstefnu Grænna skáta og REEN fimmtudaginn 19. nóvember þar sem fjallað var um hvernig nýta má tækni til að ná betri árangri í úrgangsmálum. Á ráðstefnunni voru kynntar fjölbreyttar tæknilausnir og reynsla af verkefnum sem miða að skilvirkari söfnun og meðhöndlun úrgangs.

Katrín Blöndal, efnaverkfræðingur á Samgöngu- og umhverfissviði Verkís, flutti erindi undir yfirskriftinni Ný nálgun í sorpmálum. Erindið var tvíþætt og fjallaði annars vegar um þróunarverkefni sem Verkís vinnur að í samstarfi við Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) og hins vegar um sveigjanlegar kerfislausnir og samþættingu ólíkra kerfa fyrir úrgangsmál.

Katrín kynnti þróunarverkefni um snjallsorphirðu og magnmælingar. Þar er horft til þess hvernig nýta má tækni til að innleiða BÞHE (Borgað þegar hent er) út frá vigt í sveitarfélögum.

Á ráðstefnunni voru einnig kynntar lausnir og reynsla frá REEN, Grænum skátum, SORPU, Reykjavíkurborg og Festu, miðstöð um sjálfbærni.

Ráðstefnan var vettvangur fyrir miðlun þekkingar og umræðu um hvernig tæknin getur stutt við þróun og bætta framkvæmd í úrgangsmálum.

Heimsmarkmið

Deila þessari færslu