Verkís í fyrsta þætti nýs hlaðvarps Autodesk um samgönguinnviði
Ólafur Daníel Jónsson, leiðtogi stafrænnar hönnunar og Péter Farkas, byggingarverkfræðingur hjá Verkís eru meðal fyrstu viðmælenda í nýrri hlaðvarpsseríu Autodesk, Next in Transportation, þar sem fjallað er um stafræna þróun og framtíð samgöngumannvirkja með hönnun og rekstur í fókus.
Í þættinum ræða þeir við þáttastjórnandann Pontus Bengtson um stafræna afhendingu verkefna og hvers vegna hún hefur enn ekki orðið sjálfgefin vinnuaðferð í samgöngu- og innviðaverkefnum, þrátt fyrir fjölmörg vel heppnuð dæmi. Sérstök áhersla er lögð á innleiðingu ISO 19650, meðferð og nýtingu gagna, ákvarðanatöku, notkun gervigreindar og hvernig hægt sé að færa lærdóm úr stærstu innviðaverkefnum yfir í smærri og meðalstór verkefni.

Í samtölunum er einnig horft út fyrir tæknina sjálfa og rætt um fólk, ferla, samstarf og forystu – og hvernig þessir þættir skipta máli þegar kemur að því að innleiða nýjar aðferðir og skapa raunverulegar breytingar í mannvirkjagerð.
Annar þáttur í seríunni sem einnig er kominn út er líka áhugaverður. Þar er rætt við fulltrúa Lantis í Belgíu um það hvað gerist þegar verkkaupi tekur forystu í stafrænni vegferð.
Þátttaka Verkís í Next in Transportation endurspeglar áherslu fyrirtækisins á stafræna þróun og áframhaldandi þátttöku í alþjóðlegri umræðu um nýjar leiðir til að bæta hönnun og samstarf við uppbyggingu innviða.
