Skip to content
02/10/2026

Verkís hlýtur styrk úr Heimsmarkmiðasjóð til þróunar loftslagsþolnar gróðurhúsaræktunar á Indlandi

© www.stjornarradid.is
Á myndinni eru Þórarinna Söebech, skrifstofustjóri þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins, Gauti Reynisson, forstjóri CRI, Ómar Sigurbjörnsson, Kjartan Due Nielsen, Verkís, Óðinn Albertsson, frá CRI, og Marta Birna Baldursdóttir, sérfræðingur á þróunarsamvinnuskrifstofu.
www.stjornarradid.is

Verkís hefur hlotið 4,5 milljóna króna styrk úr Heimsmarkmiðasjóð utanríkisráðuneytisins til verkefnisins „Feasibility Study of a Climate-Resilient Agriculture Demonstration Project in India“. Verkefnið felur í sér hagkvæmniathugun á uppbyggingu tilrauna- og fræðslumiðstöðvar fyrir loftslagsþolna gróðurhúsaræktun í Noida, við Nýju-Delí á Indlandi. 

Hönnun gróðurhúsanna og orkukerfa þeirra mun byggja á þekkingu á nýtingu jarðhita, en í Noida verða lausnirnar aðlagaðar að notkun varmadæla og sólarorku. Markmiðið er að gera landbúnaðarframleiðslu mögulega allt árið um kring þrátt fyrir breytileg loftslagsskilyrði. Miðstöðin á jafnframt að verða fyrirmynd að sambærilegri uppbyggingu á jarðhitasvæðum á Indlandi, þar sem jarðhiti getur komið í stað varmadælukerfa.

Helstu niðurstöður verkefnisins verða frumhönnun gróðurhúsa og samþættra orkukerfa, mat á mögulegum staðsetningum, vegvísir fyrir innleiðingu og áfangaskiptingu, ásamt áætlun um stofnkostnað og grófu mati á rekstrarkostnaði. Þessar niðurstöður munu styðja við ákvarðanir um fjárfestingu og fjármögnun uppbyggingarinnar.

Verkefnið er unnið með samstarfsaðilum okkar Techon Consulting Engineers og í gegnum sameiginlegt félag fyrirtækjanna á Indlandi, TechonVerkis Engineers Pvt. Með verkefninu miðlar Verkís íslenskri sérþekkingu á gróðurhúsaræktun, jarðhita og sjálfbærum kerfum til Indlands.

Heimsmarkmið

Á myndinni eru Þórarinna Söebech, skrifstofustjóri þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins, Gauti Reynisson, forstjóri CRI, Ómar Sigurbjörnsson, Kjartan Due Nielsen, Verkís, Óðinn Albertsson, frá CRI, og Marta Birna Baldursdóttir, sérfræðingur á þróunarsamvinnuskrifstofu.
© www.stjornarradid.is

Deila þessari færslu