04/10/2019
Verkís framúrskarandi fyrirtæki í sjötta sinn
Verkís framúrskarandi fyrirtæki í sjötta sinn. Verkís er í hópi þeirra fyrirtækja sem teljast til Framúrskarandi fyrirtækja árið 2019 samkvæmt mati Creditinfo.
Árlega vinnur Creditinfo greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og veitir Framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur. Listinn er nú unninn í tíunda sinn og verður kynntur í Hörpu þann 23. október.
Framúrskarandi fyrirtæki byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og efla hag fjárfesta og hluthafa. Það er því eftirsóknavert að skara fram úr.
Hvað er það sem gerir fyrirtæki framúrskarandi að mati Creditinfo?
- Fyrirtækið er í lánshæfisflokki 1-3
- Ársreikningi skilað lögum samkvæmt fyrir 1. september
- Fyrirtækið er virkt skv. skilgreiningu Creditinfo
- Framkvæmdastjóri skráður í fyrirtækjaskrá RSK
- Rekstrartekjur að lágmarki 50 milljónir króna 2017 og 2018
- Rekstrarhagnaður (EBIT > 0) síðustu þrjú rekstrarár
- Jákvæð ársniðurstaða síðustu þrjú rekstrarár
- Eiginfjárhlutfall a.m.k. 20% síðustu þrjú rekstrarár
- Eignir yfir 100 milljónir króna 2018, 100 milljónir króna 2017 og 90 milljónir króna 2016