Verkís á Verk og vit 2026
Verkís tekur þátt í stórsýningunni Verk og vit sem fram fer í Laugardalshöll dagana 19. – 22. mars.
Verkís verður með bás á svæði C50, þar sem starfsfólk mun taka vel á móti gestum alla sýningardagana, miðla áralangri þekkingu og reynslu, ásamt því að kynna spennandi nýjungar.
Á básnum mun gestum gefast tækifæri til að sjá og setja saman útprentað þrívíddarlíkan af varnargörðunum í Grindavík. Einnig geta þeir fræðst um sjálfvirkar sjónlausnir sem meðal annars eru notaðar við lengdarmælingu sæsnigla, úrlestur röntgentækja hjá LSH og lestur bílnúmera í tengslum við sjálfvirkar lausnir fyrir bílastæði og aðgangsstýringar.
Verk og vit er haldin í sjöunda sinn þetta árið og hefur Verkís tekið þátt frá upphafi. Verk og vit er vettvangur til að sjá allt það nýjasta í byggingariðnaði, mannvirkjagerð og skipulagsmálum.
Opnunartími sýningar:
Fimmtudagur, 19. mars 16:00-20:00
Föstudagur, 20 mars 10:00-19:00
Laugardagur, 21. mars 11:00-17:00
Sunnudagur, 22. mars 12:00-17:00
