Verkís á Lagarlíf 2026
Nýsköpun, sjálfbærni og framtíð lagareldis
Verkís tók þátt í Lagarlíf – Aqua Ice 2026, sem fór fram í Hörpu dagana 29. og 30. september. Ráðstefnan leiddi saman innlenda og erlenda sérfræðinga, fyrirtæki og rannsakendur til að ræða þróun lagareldis, helstu áskoranir greinarinnar og tækifæri til framtíðar.
Verkís með bás á sýningarsvæðinu
Fulltrúar Verkís voru með bás á sýningarsvæðinu þar sem þeir kynntu þjónustu fyrirtækisins og verkefni á sviði fiskeldis. Þar gafst gestum tækifæri til að kynnast reynslu og sérþekkingu Verkís og ræða við starfsfólk um lausnir og viðfangsefni greinarinnar.
Verkís hefur áralanga reynslu á þessu sviði og vinnur með fjölmörgum aðilum að þróun og innleiðingu umhverfisvænna lausna í sjávarútvegi og fiskeldi.
Fjölbreytt dagskrá og nýjar lausnir
Nýsköpun og sjálfbærni voru áberandi í dagskrá ársins. Fjallað var um nýja tækni í lagareldi, umhverfislegar áskoranir og lausnir, samfélagsleg viðhorf og tækifæri í eldi annarra tegunda en laxa.
Markaðsmál fengu einnig sérstaka umfjöllun, þar sem sjónum var beint að stöðu laxamarkaðarins, markaðssetningu og samkeppnisstöðu íslenskra framleiðenda.
Á seinni degi ráðstefnunnar var áhersla á stöðu eldisfyrirtækja og horfur fyrir árið 2027. Þar voru til umfjöllunar meðal annars tækifæri til vaxtar og verðmætasköpunar, umhverfisleg sjálfbærni og áhrif starfsumhverfis á áframhaldandi uppbyggingu greinarinnar.
Samtal og samstarf um framtíðina
Lagarlíf skapar vettvang fyrir aðila úr framleiðslu, þjónustu, rannsóknum og stjórnsýslu til að bera saman reynslu og ræða sameiginleg viðfangsefni. Fyrir Verkís er þátttaka í slíkum vettvangi mikilvægur þáttur í að fylgjast með þróun greinarinnar og efla tengsl við samstarfsaðila.
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna má finna á lagarlif.is.
