Umfjöllun um mötuneyti Verkís á Akureyri
Fjallað er um mötuneyti Verkís á Akureyri inn á vefsíðu Veitingageirans, þar sem sýnt er frá framkvæmdum, uppbyggingu og farið yfir stöðuna eins og hún er í dag.
Með flutningum skrifstofu Verkís á Akureyri síðast liðið haust í nýtt húsnæði var opnað mötuneyti sem þjónar starfsfólki og öðrum fyrirtækum í húsinu. Verkís rekur mötuneytið ásamt því að hafa séð um alla verkfræðihönnun rýmisins.
Aðstaðan samanstendur af fullbúnu framleiðslueldhúsi, matsal fyrir um 50 manns og notalegri kaffiaðstöðu.
Sveinn Thorarensen matreiðslumeistari og starfsmaður Verkís stýrir rekstrinum, þar sem lögð er áhersla á fjölbreyttan og næringarríkan mat, svæðisbundið hráefni og sjálfbær vinnubrögð. Mötuneytið hefur fengið góðar viðtökur frá opnun og nýtist matsalurinn einnig fyrir fundi, viðburði og félagsstarf.
Opnun mötuneytisins er mikilvægt skref í að efla þjónustu og vinnuumhverfi fyrir starfsfólk og gesti hússins.
–> Hér má lesa nánar um mötuneytið og starfsemina í grein Veitingageirans.



