Tjaldurinn mættur aftur 🐦
Tjaldurinn er kominn aftur á þakið á Verzlunarskóla Íslands, við hliðina á okkur, og er skemmtilegur vorboði, þó að vorið ætli aðeins að láta bíða eftir sér…
Arnór Þórir Sigfússon, dýravistfræðingur hjá Verkís, setti saman stuttan pistil um þetta skemmtilega „þaklíf“ og hegðun fuglanna í bakgarðinum hjá okkur.

Pistill Arnórs:
Tjaldurinn er mættur á þakið á Versló þar sem hann hefur verið með hreiður á miðju þakinu árlega. Það heyrðist fyrst í honum fyrir um viku síðan og hefur sést til parsins við ormaleit á grasbölum á lóð Verkís.
Tjaldurinn er eini vaðfuglinn hér á landi sem fóðrar unga sína og því geta þeir verpt á þökum þar sem er lítið að hafa fyrir ungana að éta. Aðrir vaðfuglar fylgja bara ungum sínum og vernda þá og vara við hættu en ungarnir þurfa sjálfir að finna sér fæðu og því eru húsþök óhentug fyrir aðra en tjalda.
Þetta þakvarp tjalda er góð vörn gegn rándýrum sem hér í borginni eru helst kettir. Það er áætlað að á Íslandi séu um 25-30 þúsund heimiliskettir sem því miður ganga alltof margir lausir og eins og köttum er tamt þá veiða þeir fugla, sérstaklega unga.
Tjaldurinn á þakinu hefur átt sér nágranna sum árin, en sílamáfspar hefur líka orpið á þakinu. Þó sílamáfar séu þekktir eggja- og ungaræningjar þá á það ekki við alla sílamáfa. Þeir sérhæfa sig flestir í ákveðinni fæðu sem þeir leita uppi en líta framhjá annarri. Þetta er vel þekkt hjá rándýrum og kallast á ensku „search image“ sem má kannski þýða sem leitar ímynd og það vill svo til að nágrannarnir á þakinu virðast ekki hafa lyst á eggjum eða ungum og hafa látið tjaldana í friði þó aðeins sé um 10 metrar á milli hreiðranna.
En þakvarp er ekki áhættulaust fyrir tjaldsungana því fallið niður af þakinu er hátt og vitað er að a.m.k. einn ungi lét lífið við það að hoppa niður. Þeir virðast þó oftast lifa fallið af, að því er virðist ómeiddir og fylgja þá foreldrum sínum um lóðina umhverfis Verkís, en foreldrarnir sitja þá gjarnan uppá þaki hjólageymslunnar eða á þökum bílanna á planinu og fylgjast með hvort hætta stafi að ungunum. Sjái þeir kött eða starfsmenn Verkís eða Wise nálgast þá vara þeir ungana við með hvellum hljómi.
Nú verður gaman að fylgjast með hvort tjaldarnir verpi ekki á mitt þakið og einnig hvort nágranninn reyni einnig varp.
