31/07/2024

Starfsfólk Verkís boðið til Bessastaða

Starfsfólk Verkís boðið til Bessastaða

Starfsfólki Verkís sem komið hafa að gerð varnargarða og verndun innviða á Reykjanesi var boðið til Bessastaða í gær, þann 30. júlí.

Þetta var síðasta embættisverk Guðna Th. Jóhannessonar forseta Íslands þar sem hann tók á móti 300 gestum á Bessastöðum. Um var að ræða móttöku fyrir þau fyrirtæki sem hafa komið að gerð varnargarða og verndun innviða á Reykjanesskaga. Alls hafa 80 fyrirtæki komið að þvi verkefni.

Með þessu vildi Guðni þakka þeim sem hafa staðið vaktina undanfarna mánuði.

Starfsfólk Verkís boðið til Bessastaða