Sjöunda Orkuverið í Svartsengi hlýtur Teninginn
Sjöunda Orkuverið í Svartsengi hlýtur Teninginn
Verkefnið Svartsengi Orkuver 7 (SVA7) í Svartsengi hlaut nýverið Teninginn frá Verkfræðingafélagi Íslands á Degi verkfræðinnar 2026. Viðurkenningin er veitt fyrir framúrskarandi verkefni eða framkvæmd og er mikilvægur vitnisburður um verkfræðilega þekkingu, tæknilega nýsköpun og reynslu á sviði jarðvarmanýtingar. Verkefnið sýnir vel hvernig öflug verkfræðiþekking, skipulag og góð samvinna geta tryggt uppbyggingu mikilvægra innviða við krefjandi aðstæður.
SVA 7 er umfangsmikil endurnýjun á orkuverinu í Svartsengi, þar sem ein ný og öflug framleiðslueining kemur í stað eldri búnaðar. Með verkefninu var framleiðslugeta raforku aukin í 85 MW, nýting auðlindarinnar bætt og rekstraröryggi styrkt til framtíðar.
Framkvæmdin fól í sér uppsetningu nýrrar 55 MW vélasamstæðu, sem jafnframt er stærsti gufuhverfill landsins. Með verkefninu voru tvö eldri orkuver í Svartsengi tekin úr rekstri og samhliða ráðist í umfangsmiklar endurbætur á búnaði sem tengist bæði raforku- og heitavatnsframleiðslu.

Ráðgjafar Verkís fylgdu verkefninu frá upphafi til enda, allt frá forhönnun að fullfrágengnu verki. Sérfræðingar á sviði vélbúnaðar aðstoðuðu við val og kaup á öllum helsta búnaði auk hönnunar á öllum lögnum og tengingum. Sérfræðingar á sviði rafbúnaðar komu að vali og kaupum á rafölum og spennum ásamt allri tengdri hönnunarvinnu, og sérfræðingar á sviði mannvirkja sáu um hönnun byggingarinnar sjálfrar. Einnig voru ráðgjafar Verkís á verkstað á framkvæmdatíma til að tryggja gæði verksins.
Verkefnið byggir á áratugalangri þekkingu Verkís á Svartsengissvæðinu, en fyrirtækið hefur veitt ráðgjöf vegna orkuversins allt frá árinu 1978.
Við óskum HS Orku og öllum sem komu að verkefninu innilega til hamingju með þennan árangur og þökkum farsælt samstarf í gegnum árin.

„Það er mjög ánægjulegt að sjá verkefni af þessari stærðargráðu hljóta slíka viðurkenningu. Hún endurspeglar góða samvinnu allra aðila og þá traustu reynslu og þekkingu sem Verkís hefur byggt upp á sviði jarðvarmavirkjana. Okkar teymi er stolt af því að hafa tekið þátt í verkefninu, og þessi viðurkenning undirstrikar mikilvægi samstarfsins og okkar hlutverks í verkefnum á sviði jarðvarma, bæði hér heima og á alþjóðavísu.“
— Sunna Ósk Kristinsdóttir, verkefnastjóri hönnunar
Hægt er að lesa nánar um verðlaunin á heimasíðu Verkfræðingafélags Íslands
