Skip to content
11/11/2026

Sérfræðingar Verkís komu að gerð leiðbeiningarrits Alþjóðabankans um jarðvarmavirkjanir

Nýtt leiðbeiningarrit um rekstur og viðhald jarðvarmavirkjana hefur verið gefið út af ESMAP (Energy Sector Management Assistance Program),  þekkingar- og styrktarsjóði sem stýrt er af Alþjóðabankanum (World Bank Group). Sérfræðingar Verkís komu að gerð ritsins, sem ber heitið Operation and Maintenance Strategies for Geothermal Power Plants.

Ritinu er ætlað að veita eigendum, rekstraraðilum og öðrum hagaðilum jarðvarmavirkjana hagnýtar leiðbeiningar um árangursríkan rekstur og viðhald. Markmiðið er að stuðla að betri nýtingu jarðhitaauðlinda, lengri líftíma virkjana og draga úr ófyrirséðum rekstrarstöðvunum.

Í ritinu er meðal annars lögð áhersla á mikilvægi þess að huga að rekstri og viðhaldi strax á hönnunarstigi, fylgjast markvisst með ástandi jarðhitaauðlindarinnar og búnaðar, auka þekkingu starfsfólks og nýta stafrænar lausnir við vöktun og viðhaldsáætlanir.

Leiðbeiningarnar byggja á rannsóknum, viðtölum við sérfræðinga og reynslu úr jarðvarmageiranum víða um heim. Jafnframt er kynnt átta þrepa aðferðafræði við mótun og innleiðingu rekstrar- og viðhaldsáætlana.

Ritið kom út í júlí 2026 og er aðgengilegt á vef ESMAP.

Skoða ritið á vef ESMAP

Heimsmarkmið

Deila þessari færslu