Nýr útibússtjóri á Austurlandi
Nýr útibússtjóri á Austurlandi. Baldur Þór Halldórsson byggingarverkfræðingur tók við starfi útibússtjóra Verkís á Austurlandi nú um áramótin.
Baldur Þór útskrifaðist sem byggingartæknifræðingur frá DTU 2014 og sem byggingarverkfræðingur M.Sc. frá DTU 2016. Þá er hann einnig með meistarapróf í múrsmíði.
Baldur Þór starfaði hjá NIRAS og síðar ARI Byggerådgivning í Danmörku 2012-2016. Hann hefur starfað hjá Verkís með hléum frá árinu 2016, en hann var framkvæmdastjóri Malbikstöðvarinnar ehf. um tveggja ára skeið á árunum 2019-2021. Hann hefur víðtæka reynslu og þekkingu af hönnun nýbygginga sem og eldri mannvirkja.
Verkís er með starfsstöðvar á Austurlandi að Kaupvangi 3b á Egilsstöðum og að Búðareyri 11-13 á Reyðarfirði.
Kaupvangur 3b á Egilsstöðum
Búðareyri 11-13 á Reyðarfirði