Nýjar nálganir við hreinsun mengaðs jarðvegs á Íslandi
Hvernig er hægt að takast á við jarðvegsmengun á skilvirkari og sjálfbærari hátt?
Þeirri spurningu var meðal annars svarað á Urðunardeginum 2026, þar sem Erla Guðrún Hafsteinsdóttir, umhverfis- og jarðefnafræðingur hjá Verkís, fjallaði um nýjar nálganir í hreinsun mengaðs jarðvegs.
Sorpa, ReSource International ehf. og Fenúr stóðu fyrir ráðstefnunni, þar sem komu saman sérfræðingar á sviðinu til að ræða áskoranir, lausnir og næstu skref varðandi urðun.
Jarðvegur mikilvæg auðlind
Í erindinu var lögð áhersla á mikilvægi jarðvegs sem einnar af lykilauðlindum samfélagsins. Jarðvegsmengun getur haft víðtæk áhrif, bæði á vistkerfi og heilsu fólks, og því er mikilvægt að beita markvissum og árangursríkum aðferðum við úrbætur.
Nýjar lausnir við mengun
Erla kynnti meðal annars nýjar aðferðir sem miða að því að binda eða einangra mengandi efni í jarðvegi, í stað þess að fjarlægja hann alfarið. Slíkar lausnir geta dregið úr raski á umhverfi, lækkað kostnað og flýtt fyrir framkvæmdum.
Sérstök áhersla var lögð á lausnir sem nýtast við hreinsun á PFAS-efnum, svokölluðum „eilífðarefnum“, sem eru þekkt fyrir að brotna mjög hægt niður í náttúrunni og geta safnast upp í lífverum.

Reynsla frá Íslandi
Í erindinu var einnig farið yfir dæmi um in-situ hreinsun hér á landi, þar sem unnið er með mengunina á staðnum í stað þess að flytja jarðveginn burt. Slík nálgun hefur verið notuð á verkefnum á Íslandi og sýnir hvernig hægt er að beita alþjóðlegum lausnum við íslenskar aðstæður.
Mikilvæg þekking fyrir framtíðina
Aukin þekking og þróun á þessu sviði er lykilatriði í að takast á við áskoranir tengdar mengun og sjálfbærri landnýtingu. Verkís leggur ríka áherslu á að fylgjast með nýjustu þróun og miðla þekkingu sem styður við betri ákvarðanatöku og umhverfisvænni lausnir.
