Ný kynslóð hússtjórnarkerfa kynnt hjá Verkís
Snjallar lausnir í rekstri og hönnun bygginga voru í fyrirrúmi á kynningarfundi sem Verkís, Schneider Electric og Fálkinn-Ísmar stóðu fyrir í húsakynnum Verkís að Ofanleiti 2 þann 24. september.
Nútímabyggingar kalla á aukna yfirsýn, sveigjanleika og skilvirkni í rekstri. Á fundinum var fjallað um hvernig ný kynslóð hússtjórnarkerfa getur mætt þessum þörfum, einfaldað rekstur bygginga og skapað ný tækifæri við hönnun og uppbyggingu þeirra.
Í aðalhlutverki var EcoStruxure Building Operation (EBO), hússtjórnarkerfi frá Schneider Electric. Farið var yfir rekstraröryggi, samþættingu við önnur kerfi og hagkvæmni við hönnun, uppsetningu og gangsetningu. Einnig var rætt hvernig kerfið getur þróast í takt við breyttar þarfir bygginga og notenda.
Verkís kynnti nýleg verkefni þar sem EBO hefur verið innleitt. Þá fjallaði sérfræðingur frá Schneider Electric um aðkomu fyrirtækisins að innleiðingu kerfisins fyrir nýtt hátæknisjúkrahús í Danmörku og kynnti framtíðarsýn fyrirtækisins fyrir þróun þess.
Verkís þakkar Schneider Electric, Fálkanum-Ísmar og gestum fundarins fyrir daginn.
