01/12/2022
Nemendur í tækniteiknun heimsóttu Verkís
Nemendur í tækniteiknun heimsóttu Verkís. Í október fengum við heimsókn frá nemendum Tækniskólans sem leggja stund á tækniteiknun. Hópurinn fékk kynningu á starfsemi Verkís og síðan sögðu þær Stefanía Marta Jónasdóttir og Edda Svavarsdóttir, tækniteiknarar á Orku- og iðnaðarsviði, þeim frá starfi sínu.
Rut Bjarnadóttir, orkuverkfræðingur, sagði hópnum frá hönnun og stækkun jarðvarmavirkjunarinnar í Svartsengi og gátu þau síðan skoðað hönnunina í þrívídd með sýndarveruleikagleraugum. Að lokum skoðuðu þau vinnuaðstöðuna í Ofanleiti. Við þökkum þessum flotta hópi kærlega fyrir komuna.