Myndband: Fyrstu áfangar breikkunar Vesturlandsvegar
Myndband: Fyrstu áfangar breikkunar Vesturlandsvegar. Hönnun fyrsta áfanga breikkunar Vesturlandsvegar um Kjalarnes er lokið og verður hann boðinn út í vikunni. Verkís sér um verkhönnun.
Fyrsti áfangi nær frá Varmhólum að Vallá en í heild snýr verkið að breikkun Vesturlandsvegar á um 9 km kafla milli Varmhóla og Hvalfjarðarvegar. Í myndbandi sem fylgir fréttinni má sjá umfang framkvæmdanna.
Vegurinn verður 2+1 vegur en á honum verða þrjú hringtorg, við Móa, annað við Grundarhverfi og það þriðja við Hvalfjarðarveg. Samhliða breikkuninni verður vegtengingum fækkað og í staðinn gerðir hliðarvegir ásamt reiðstígum og stígum fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur.
Skipulagsstofnun hefur lokið álitsgerð á matsskýrslu vegna framkvæmdarinnar. Talið er að matsskýrslan uppfylli skilyrði laga og reglugerðar um mat á umhverfisáhrifum og að umhverfisáhrifum hafi verið lýst á fullnægjandi hátt. Áhrif á umferðaröryggi eru metin verulega jákvæð.
Myndband Verkís þar sem sjá má umfang framkvæmdanna:
Frétt Vegagerðarinnar: Breikkun Vesturlandsvegar – Myndband
Verkefni Verkís: Breikkun Vesturlandsvegar um Kjalarne