Mikill áhugi á leðurgimpi Verkís
Mikill áhugi á leðurgimpi Verkís. Þegar lá fyrir í dag að lið Verkís hefði safnað 200 þúsund krónum í áheitasöfnun WOW Cyclothon fyrir sumarbúðirnar í Reykjadal var ekki annað í stöðunni en að efna loforðið mikla.
Þórður Þorsteinsson, tæknifræðingur og einn tíu liðsmanna Verkís, skellti sér í leður frá toppi til táar áður en brunað var í gegnum Egilsstaði og þaut þar í gegn, í 26 stiga hita, í fylgd tveggja annarra úr liðinu.
Uppátækið vakti mikla lukku, bæði í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum.
Frétt Vísis: Tæknifræðigimp brunaði í gegnum Egilsstaði með grímuna hennar Yrsu
Frétt DV: Sjáðu BDSM gimpið sem hjólar í WOW Cyclothon
Frétt mbl.is: Sveittur í leðri í gegnum Egilsstaði
Þegar þetta er skrifað hefur liðið safnað rétt tæpum 250 þúsund krónum. Við þökkum kærlega fyrir áhætin og hvetjum alla til þess að heita á duglega fólkið okkar og leggja þannig sumarbúðunum í Reykjadal lið.
Sumarbúðirnar eru fyrir börn og ungmenni með líkamlega og/eða andlega fötlun. Búðirnar eru reknar af Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra.
Áheitanúmer Verkís er 3040
Sendið 3040 í SMS í:
901 5001 fyrir 1.000 kr.
901 5002 fyrir 2.000 kr.
901 5005 fyrir 5.000 kr.
901 5010 fyrir 10.000 kr.