Marriott flugvallarhótel – Fyrsta skóflustungan
Marriott flugvallarhótel – Fyrsta skóflustungan að flugvallarhótelinu var tekin í gær, fimmtudag 19. júlí, en Verkís sér um alla verkfræði hönnun og ráðgjöf.
Marriott flugvallarhótelið verður staðsett við gatnamót Aðalgötu og Reykjanesbrautar á leið út á Keflavíkurflugvöll. Hótelið verður 150 herbergja og 6.000 m2, ásamt verslunarkjarna.
Hótelið mun verða hluti af Courtyard-keðju Marriott en sú keðja rekur yfir þúsund hótel á öllum helstu flugvöllum Evrópu. Courtyard hótelin eru þriggja stjörnu.
Framkvæmdir eiga að hefjast í kjölfar skóflustungunnar og áætlað er að hótelið opni haustið 2019.
Byggingaraðili hótelsins er fyrirtækið Aðaltorg ehf. í Reykjanesbæ.
Uppfært 4.5.2020: Hótelið hefur fengið nafnið Aðaltorg.